Upplýsingatækni í enskukennslu

Skrifað 20. February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég verið að kynna og kenna á Clicker 5 hugbúnaðinn sem er einstaklega skemmtilegt verkfæri og mikið nota í sérkennslu. Clicker var hannað til þess að styðja við lestur og ritun og er í raun margmiðlunarumhverfi þar sem einfalt er að blanda saman texta, hvers kyns myndum og hljóði. Clicker er í senn umhverfi þar sem kennari skapar eða aðlagar verkefni og vettvangur fyrir nemendur að leysa verkefni.

Clicker 5

Ég hef verið í góðu samstarfi við Skólavörubúðina um kynningu á Clicker, en Skólavörubúðin er umboðsaðili fyrir Cricksoft framleiðendur Clicker hugbúnaðarins.

Þrátt fyrir að Clicker hafi upphaflega verið hugsað í kennslu nemenda með sértækar námsþarfir þá er um að ræða mjög sveigjanlegan hugbúnað sem hentar vel á leikskólastiginu og í yngri bekkjum grunnskólans. Clicker fylgir og vandað safn mynda sem gott er að hafa við höndina þegar verið er að setja saman verkefni. Einn helsti kostur Clicker er hversu einfalt það er í notkun.

Nýlega kynnti ég Clicker fyrir meðlimum í Félagi enskukennara á Íslandi (FEKI) en möguleikar Clicker í enskukennslu eru fjölmargir og spennandi. Ekki síst vegna þess að forritið inniheldur öflugan talgervil sem hefur þá virkni að um leið og nemandi slær inn texta á ensku er hægt að fá hann upplesinn. Um þessar mundir er einnig verið að kanna möguleika Clicker í nýbúakennslu.

Á vef Skólavörubúðarinnar er hægt að skrá sig á námskeið í Clicker, en næsta námskeið verður haldið þegar nógu stór hópur hefur skráð sig. Skólar geta einnig haft samband við Skólavörubúðina ef þeir hafa áhuga á að fá námskeið til sín.

Technorati tög: ,


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni