Stórsniðug leið til að nýta Flickr í listgreinakennslu
Flickr er hagnýtt verkfæri í listgreinakennslu, t.d. listasögu, eins og sjá má þegar smellt er á meðfylgjandi mynd. Hér hefur hugvitsamur kennari birt nemendum sínum fræg verk úr listasögunni og notað “notes” verkfærið í Flicker til að bæta skýringum við afmarkaða hluta þeirra. Nemendur og kennari geta síðan rætt um myndirnar á Netinu enda býður Flickr upp á umræður um hverja einstaka mynd sem þar er sett inn.
Umræddur kennari hefur einnig stofnað svokallaðan Flickr hóp (group) þar sem hann safnar saman bæði myndum og nemendum. Flickr hópar eru öflug leið til að nýta upplýsingatækni í skólastarfi. Þeir geta verið opnir eða aðgangsstýrðir og bjóða m.a. upp á umræður.
Technorati Tags: flickr, listgreinar, art



