Einföld vefsmíði og vefhýsing í boði Google
Nú geta allir sem vilja sett saman eigin vef og hýst allt að 100MB endurgjaldslaust án þess að þekkja hið minnsta til HTML eða nota sérhæfðan hugbúnað til vefsíðugerðar. Allt í boði frumkvöðlanna í Google sem nýlega opinberuðu vefinn Google Page creator einmitt í þessum tilgangi.
Google page creator þjónustan er einstaklega einföld í notkun og kjörin vettvangur fyrir kennara og nemendur sem hafa áhuga á vefsmíðum og auðvitað alla þá sem vilja birta hvers kyns efni á Netinu. Vefsmíði með Page creator fer öll fram innan netvafrans og geta notendur mótað útlit vefsins með ótal sniðmátum, sem þó mættu vera aðeins meiri að gæðum. Page Creator á sér vissulega sína fyrirrennara, s.s. Geocities, en með nýjustu Ajax tækni er um töluvert aðra upplifun að ræða. Page creator er fyrst og fremst nothæft til að setja saman frekar einfalda vefi og hentar þjónusta t.d. ekki þeim sem hafa áhuga á því að koma sér upp bloggi.
Hver einstaka notandi Pagecreator fær úthlutað eigin vefslóð á sniðinu http://notendanafn.googlepages.com og til þess að birta eða uppfæra vef sem er í smíðum þarf aðeins að smella á einn hnapp. Reyndar hefur það vakið nokkuð hörð viðbrögð þeirra sem hafa kynnt sér Page Creator að Google skuli kjósa að opinbera á þennan hátt notendanafn netverja því þar sem notendanafnið er um leið gmail tölvupóstfang notandans þá býður þá upp á misnotkun. Hafa sumir varað við notkun Page Creator vegna þessa og er sjálfsagt að vekja athygli á því hér.
Pagecreator þjónustan er opin öllum skráðum Google notendum sem einnig eru með Gmail aðgang, en hægt er að skrá sig hér. Skráning á Google veitir aðgang að fjölda ókeypis þjónusta í boði fyrirtækisins, s.s. Google analytics sem ég hef áður fjallað um. Notendur Gmail tölvupóstsins hafa nú þegar aðgang að Pagecreator ásamt öðrum Google þjónustum og þurfa ekki frekari skráningar við. Aðgangur að Gmail er takmarkaður með svokölluðum boðsmiðum sem núverandi Gmail notendur geta sent vinum, kunningjum eða öðrum sem þeir kjósa að bjóða aðgang að þjónustunni.
Hér má sjá einfaldan vef sem ég setti saman með aðstoð Google Page creator
Technorati Tags: Google, page creator, vefsmíði, vefsíðugerð



February 24th, 2006 at 5:39
Alveg frá því ég reyndi fyrst að opna Google Analytics aðgang, þá hef ég fengið þessi skilaboð:
“Google Analytics has experienced extremely strong demand. We are sending invitations to new users to sign up as we add more capacity. If you would like to receive an invitation code, please enter your email address below and we will send you one as capacity becomes available.”
Fyrr í dag þegar ég reyndi að skoða Page Creator, þá fékk ég sams konar meldingu þar.
April 1st, 2006 at 9:59
[...] Einföld vefsmíði og vefhýsing í boði Google Nú geta allir sem vilja sett saman eigin vef og hýst allt að 100MB endurgjaldslaust án þess að þekkja hið minnsta til HTML eða nota sérhæfðan hugbúnað til vefsíðugerðar. Tög [...]