Örninn er lentur!

Skrifað 24. February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Sunnudaginn 20. júlí árið 1969 lenti Apolló 11 geimfarið á tunglinu með tvo menn innanborðs. Daginn eftir steig Neil Armstrong fyrstur manna fæti á tunglið og markar sá atburður djúpt spor í sögu Bandaríkjanna og mannkynssögunni allri. Frásögnin af ævintýralegum leiðangri Apolló 11 og fjölda annarra viðburða sem tengjast sögu Bandaríkjanna er nú aðgengileg í máli og myndum endurgjaldslaust á Google Video safninu.

orninn_er_lentur.jpg

Myndböndin eru afrakstur samstarfsverkefnis Google og National Archives stofnunarinnar í Bandaríkjunum. Markmiðið með framtakinu er að gera þennan dýrmæta menningararf bandarískrar sögu aðgengilegan öllum sem áhuga hafa og er óhætt að segja að um mjög spennandi verkefni sé að ræða. Hér er komið kjörið efni fyrir kennara sem hafa að viðfangsefni nútímasögu og hvet ég þá eindregið til að nýta sér það í kennslu, eða segir mynd ekki meira en 1000 orð?

Að lokum bendi ég á fleira áhugavert efni um stjörnuskoðun og tunglferðir

Technorati Tags: , ,


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni