Close

Svona gerum við

Námsefni

Má bjóða þér í Safari?

28 Feb Uncategorized | Athugasemdir
safari_logo_new.gifO’reilly bókaútgáfan sem sérhæfir sig í útgáfu bóka á sviði upplýsingatækninnar býður upp á mjög spennandi þjónustu sem ég hef undanfarnar vikur verið að kynna mér. Þjónustan, sem gengur undir nafninu Safari Bookshelf, er áskriftarvefur þar sem áskrifendur hafa aðgang að yfir 3000 bókum úr safni O’Reilly og Person Technology Group gegn vægri mánaðarlegri þóknum. Um er að ræða marga vinsælustu bókaflokka tæknibóka sem gefnir eru út.

Fyrirkomulagið á Safari er einfalt, en nokkrir áskriftarflokkar eru í boði. Áskriftarflokkarnir ákvarða fyrst og fremst stærð (sýndar)bókahillunnar sem notandinn hefur til umráða, þ.e. hversu margar bækur getur viðkomandi notandi lesið í einu. Ég hef t.a.m. aðgang að 10 sæta (slots) bókahillu en hver bók getur tekið 1-2 sæti í hillunni. Ég get því valið mér 5-10 bækur og sett í bókahilluna mína á Safari Bookshelf og lesið á Netinu eftir hentugleika. Ég get skipt um bækur í hillunni en hver bók verður að vera þar í það minnsta 30 daga. Þessi áskriftarflokkur kostar 19$ á mánuði sem samkvæmt genginu í dag (28. feb 2006) er um 1250kr. Innifalið í áskriftinni er prentun á 5 bókaköflum, þ.e. ég get sótt 5 kafla á pdf sniði og prentað að vild. Í hverjum mánuði fæ ég 5 prentheimildir í viðbót.

Safari Bookshelf inniheldur mikið magn bóka og áskrift að þessari þjónustu felur í sér umtalsverðan sparnað fyrir mig, enda hef ég keypt töluvert af tæknibókum á ári hverju. Þarna hef ég aðgang að öllum nýjustu bókunum og jafnvel bókum sem enn hafa ekki verið gefnar út. Þetta er líka hentug þjónusta þar sem margar tæknibækur vilja úreldast ansi fljótt eins og margur hugbúnaður gerir þegar nýjar útgáfur eru stöðugt að líta dagsins ljós.

Ég hvet ykkur því til þess að skoða Safari Bookshelf. Hægt er að panta 14 daga prufuaðgang sem ætti að vera meira en nógur tími til að sjá hvað er í boði.

Technorati Tags:


Tengt efni

Skráðu athugasemd