Moodle á UT2006

Skrifað 02. March 2006
Ein athugasemd frá lesendum

ut2006.jpgUT2006 ráðstefnan um upplýsingatækni í námi og kennslu fer fram föstudaginn 3. mars nk. undir yfirskriftinni sveigjanleiki í skólastarfi. Eins og titillinn gefur til kynna verður megináhersla lögð á sveigjanlega kennsluhætti. Ráðstefnan verður með öðru sniði í ár en venjulega, þar sem reynt verður eftir megni að gera ráðstefnugesti að virkum þátttakendur í dagskránni og formlegir fyrirlestrar verða í lágmarki.

Hvað efni ráðstefnunar varðar vil ég vekja sértaka athygli á fyrirlestri Matthew Whelpton, “Því meiri samskipti, því meiri árangur: þróun vefkennslu í tungumálum”. Matthew er kennari við Háskóla Íslands og er forsvarsmaður Covcell (Cohort-Oriented Virtual Campus for Effective Language Learning” verkefnisins þar sem opna námsstjórnunarkerfið Moodle er í aðalhlutverki.

Covcell verkefninu, sem kosta mun alls tæpar 450 þúsund evrur (tæpar 32 milljónir króna), er ætlað að koma til móts við þörf fjarnema í tungumálanámi fyrir aukin samskipti sín á milli. COVCELL-verkefnið gefur kennurum jafnframt færi á að hafa samskipti við einstaka nema eða marga saman. Möguleikar á vinnuhópum, sjálfsmati og mati kennara á nemendum verða þróaðir og leitað leiða til að kennari geti leiðbeint nemendum og brugðist skjótt við ef upp koma vandamál. Jafnframt er ætlunin að gera nemendum og kennurum kleift að spjalla saman um hvaðeina annað en námið sjálft ef áhugi er fyrir hendi (sjá frétt).

Ég vil einnig vekja athygli á því að Moodle verður kynnt fyrir gestum og gangandi á UT2006 og hvet alla sem áhuga hafa til að koma og kynna sér kerfið. Fulltrúa frá upplýsingatæknisviði Menntasviðs Reykjavíkurborgar býð sér sérstaklega velkomna.

Frekari upplýsingar um UT2006 má finna hér.

Technorati Tags: , ,


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “Moodle á UT2006”

  1. Freyja skrifar:

    Já, þetta var sko frábær ráðstefna! Mér finnst þetta hinsvegar alveg ömurleg mynd af mér sem þér tókst að troða inná flickr safnið þitt ;) Asnalegt að taka myndir af bakinu á fólki ! ;) Hlakka til komandi samstarfs, sé að ég þarf að lesa síðuna þína

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni