Paint.NET - opinn hugbúnaður frá Microsoft?
Tæknirisinn Microsoft hefur fram til þessa ekki þótt sérstaklega vinveittur opnum hugbúnaði (open source) svo vægt sé til orða tekið. Hið stórskemmtilega myndvinnsluforrit Paint.net er þó fróðleg undantekning frá þessari reglu. þróun þess er í höndum þriggja forritara sem allir starfa hjá Microsoft, en vinna að Paint.net í frítíma sínum. Verkefnið er unnið með vitun og velvilja Microsoft, en verður þú að teljast óformlegt verkefni innan herbúða þess og er ekki hýst á vefþjónum fyrirtækisins.

Paint.net á upphaf sitt að rekja til ársins 2004 þegar nemendur í framhaldsáfanga í forritun við ríkisháskólann í Washingtonfylki fengu það verkefni að endurbæta Paint teikniforritið sem er innifalið í Windows stýrikerfinu. Það tók nemendurna 15 vikur að skila af sér útgáfu 1.0 sem reyndar byggði á engan hátt á forritskóða Paint og síðan hefur ekki verið aftur snúið. Paint.net er opinn hugbúnaður og engar áætlanir eru uppi um að breyta þeim leyfisskilmálum. Nýlega var opinberuð útgáfa 2.6 og er hægt að sækja hana án endurgjalds hér. Athugið að útgáfan keyrir á .net og krefst þess að “.net 2.0 framework” sé til staðar í tölvu notenda.
Paint.net hefur notið töluverðra vinsælda frá því forritið leit dagsins ljós. Við hönnun þess var áhersla lög á einfaldleika í notkun og virðast þær áherslur hafa komist vel til skila því viðtökur notenda hafa verið mjög góðar. Paint.net hentar mjög vel í skólastarfi, það inniheldur allar algengustu aðgerðir stærri og dýrkeyptari myndvinnsluforrita, enda stundum kallað Photoshop fyrir almenning. Ágætt er þó að hafa í huga að Paint.net hefur aldrei verið ætlað að keppa við risana á markaði myndvinnsluhugbúnaðar og er mun takmarkaðra en t.a.m. Photoshop eða hið frjálsa Gimp, en í hefðbundnu skólastarfi er á hinn bóginn sjaldnast þörf fyrir alla þá stórkostlegu möguleika sem forrit eins og Photoshop hafa í boði. Á Betanews vefnum má lesa mjög góða grein um tilurð og þróun Paint.net.
Technorati Tags: paint.net, gimp, microsoft, open source, myndvinnsla, teikniforrit


