Hvað er Menningarnet.is?

Skrifað 06. March 2006
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Logo_menningarnet_bradabirgda.jpgUT2006 ráðstefnan var nýlega haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Grundarfirði og var hún vel heppnuð. Yfirskrift ráðstefnunar var að þessu sinni sveigjanleiki í skólastarfi og var fyrirkomulagið með nokkru öðru móti en hefð er fyrir. Meðal þess sem kynnt var á UT2006 er yfirstandandi þróun á Menningarnetinu, opnum gagnabanka hráefnis, fræðsluefnis og námsefnis frá menningarstofnunum, listamönnum, fræðimönnum, kennurum og nemendum.

Að Menningarnetinu standa þau Gunnar Grímsson viðmótshönnuður og kennari við Iðnskólann í Reykjavík, Sigurbjörg Jóhannesdóttir kennari og myndlistamaður og Sigurður Einarsson forritari. Samstarfsaðilar þeirra eru Menntamálaráðuneytið, Listaháskóli Íslands og Ríkisútvarpið, en ætlunin er að fá fleiri aðila til liðs við verkefnið, s.s. kennara, nemendur, listamenn og fræðimenn og menningarstofnanir og söfn svo eitthvað sé nefnt. Markmiðið með Menningarnetinu er að safna saman menningarverðmætum þjóðarinnar í stafrænu formi svo kennarar geti nýtt sér þau í kennslu og til opinnar námsefnisgerðar á Neti.

Menningarnetið er mjög spennandi verkefni og hvet ég alla til þess að kynna sér það frekar á vefnum Menningarnet.is. Þar er m.a. hægt að skrá sig á umræðuvef sem er opinn öllum sem vilja koma á framfæri hugmyndum eða taka þátt í umræðum um eðli og innihald Menningarnetsins. Það sem heillar mig persónulega við þetta verkefni er hið opna eðli þess. Menningarnetinu er ætlað að verða opið námsumhverfi og efnið sem þar verður að finna má nota að vild á meðan höfundarréttur þess er virtur. Þróun Menningarnetsins er líka skemmtilega opin og gagnvirk ef þannig má að orði komast. Á UT2006 fór t.d. fram hugstormun þar sem þátttakendur gátu komið með athugasemdir og ábendingar, s.s. um hverskonar efni Menningarnetið ætti helst að innihalda, framsetningu vefsins, viðmót og virkni. Það verður gaman að fylgjast með þróun á Menningarnetinu og óska hér aðstandendum til lukku með vel heppnaða og vel sótta kynningu á UT2006.

Technorati Tags:


Tengt efni

Skráðu athugasemd