Ísbirnir á Menntagátt
Grunnskólanemendur í 9 skólum á Íslandi, fylgja eftir ísbjarnaveiðimönnum á Austur-Grænlandi, með hjálp íslensks leiðangurs. Í u.þ.b. 6 vikur, þ.e. á tímabilinu 15. mars – 8. maí 2006 munu leiðangursmenn verða í sambandi við nemendur og kennara og miðla upplýsingum úr ferðinni með myndum, texta og rauntímasamskiptum.
Efni frá leiðangrinum verður komið á framfæri á Menntagátt og verður það öllum aðgengilegt. Nemendur verða líka í beinum samskiptum við leiðangurinn, í gegnum síma og mynd. Öll samskipti verða tekin upp og gerð aðgengileg.
Allar frekari upplýsingar um þetta spennandi verkefni má finna á Menntagátt.


