Photofolio - einfalt en öflugt myndakerfi
Skólar, kennarar eða áhugasamir nemendur sem vilja birta myndir af viðburðum eða eigin verkum á aðgengilegan og skemmtilegan hátt á Netinu ættu tvímælalaust að kynna sér Photofolio. Photofolio er vandað flash myndaalbúm sem einfalt er að setja upp á vefþjón og heimilt að nýta án endurgjalds.
Ég prufaði að setja upp Photofolio á vefþjón sem ég hef aðgang að, bara til þess að láta reyna á hversu einfalt það raunverulega er. Uppsetning reyndist lítið mál og tók ekki nema nokkrar mínútur. Uppsetningin felst í því að afþjappa skránni sem geymir forritið og færa yfir í þar til gerða möppu á vefþjóninum. Photofolio keyrir á vefþjóni sem styður PHP 4.3 eða nýrri útgáfu, GD verður einnig að vera uppsett. Athugið að möppurnar sem geyma myndirnar í albúminu verða að hafa skrifheimildir. Frekari upplýsingar um uppsetingu má finna á vef útgefanda. Smelltu á myndina hér að ofan til þess að sjá árangurinn.
Photofolio virkar þannig að eftir að forritið hefur verið sett upp eru möppur búnar til á vefþjóninum, í sömu möppu og sjálft forritið er geymt. Þessar möppur hafa að geyma myndir og verður hver þeirra að sérstöku safni í albúminu. Þetta fyrirkomulag krefst aðgengis að vefþjóninum, s.s. í gegnum ftp. Eftir að myndum hefur verið hlaðið í viðkomandi möppur eru tvö lítil forrit keyrð, annað býr til smámyndir (thumbnails) og hitt XML skránna sem inniheldur allar upplýsingar um viðkomandi albúm. Þetta þarf að gera í hvert sinn sem einstaka myndum er bætt við möppu eða ný mappa með myndum búin til.
Þrátt fyrir smá umstang við uppsetningu og umsýslu Photofolio er þeim tíma vel varið að mínu mati. Og ég er ekki einn um þá skoðun. Smelltu hér til að sjá myndaalbúmið hans Arnþórs Birkissonar listaljósmyndara sem notar Photofolio til að birta myndasafnið sitt á Netinu.
Technorati Tags: photofolio




April 1st, 2006 at 9:58
[...] Photofolio - einfalt en öflugt myndakerfi Skólar, kennarar eða áhugasamir nemendur sem vilja birta myndir af viðburðum eða eigin verkum á aðgengilegan og skemmtilegan hátt á Netinu ættu tvímælalaust að kynna sér Photofolio. [...]