Mars og tunglið - í boði Google
Maður er nefndur Percival Lowell, fæddur í Boston í Bandaríkjunum þann 13. mars árið 1855. Lowell var vellauðugur og vel ættaður áhugamaður um stjörnuskoðun og hafði auk þess mikinn áhuga á austrænum þjóðum, sérstaklega Japan og Kóreu. Lowell var heillaður af plánetunni Mars og eyddi drjúgum hluta ævi sinnar í að rannsaka hana eins ítarlega og tækni þess tíma gaf kost á. Árið 1894 reisti hann stjörnuathugunarstöð í Arisóna, Lowell Observatory, sérstaklega með það í huga að kanna plánetuna rauðu. Niðurstöður rannsókna sinna birti Lowell í þremur bókum sem hann gaf út á árunum 1895 – 1908 þar sem hann staðfesti fyrir sitt leyti kenningar fyrri fræðimanna um viðamikla skurði sem að mati margra virtust benda til vitsmunalífs á plánetunni, marsbúa.
Í tilefni af fæðingardegi Percival Lowells býður Google netverjum upp á rafræna skoðunarferð um Mars sem opinn er öllum sem áhuga hafa. Frekari upplýsingar um Percival Lowell má finna á Wikipedia, sem einnig er heimildin fyrir ofangreindum texta. Skoðið einnig tölvugert myndband þar sem ferðast er um svokallaðan Sjómannadal á Mars.
http://video.google.com/videoplay?docid=-1622667251598627943Sjálfsagt er að geta þess að Google hefur einnig aðgengilegt rafrænt kort af næsta nágranna okkar jarðarbúa, nefnilega tunglinu (p.s. prufið að skoða tunglið í mestu stækkun!)
Frekari upplýsingar um sólkerfið okkar má finna á vefnum Stjörnuskoðun.
Technorati Tags: google mars, google moon, google, percival lowell, wikipedia


