Close

Svona gerum við

Námsefni

Rauntímaspjall á vefnum með aðstoð Gabbly

15 Mar Uncategorized | 1 athugasemd
gabbly.jpgGabbly er nýtilkomin netbundin þjónusta sem vakið hefur gríðarmikla athygli síðustu daga, svo mikla að vefþjónar fyrirtækisins hafa átt í stökustu vandræðum með að halda þjónustunni gangandi. Í stuttu máli sagt þá gerir Gabbly hverjum sem er kleift að birta rauntímaspjall á hvaða vef sem er og þannig tengjast öðrum netverjum og ræða við þá um allt milli himins og jarðar. Gabbly er eins og MSN spjallið velþekkta og aðrar slíkar lausnir, nema bundið við ákveðna vefslóð.

Gabbly er ákaflega einfalt og notkun þess er endurgjaldslaus enn sem komið er. Ekki er krafist uppsetningar, innskráningar, notendanafns eða lykilorðs. Það eina sem netverjar þurfa að gera til að framkalla Gabbly spjallglugga er að slá slóðina www.gabbly.com/ í vefskoðarann og bæta svo við slóðinni að þeim vef sem ætlunin er að spjallið birtist á. Smelltu á krækjuna sem hér fer á eftir til þess að opna Gabbly spjallglugga á þessum vef, ef þú ert heppinn er annar notandi tengdur á sama tíma og þú: www.gabbly.com/sfjalar.net.

Gabbly verður seint talin byltingarkennd nýjung. Vefir hafa í lengri tíma boðið upp á margskonar leiðir til svipaðra samskipta og má þar t.a.m. benda á hverskyns spjallforrit í java eða flash og svokölluð kallbox (veit ekki alveg hvernig þetta hefur verið þýtt) eða “shoutbox” eins og þau eru nefnd á ensku. Kallbox eru reyndar ólík Gabbly að því leyti að samskipti með aðstoð þeirra þurfa ekki endilega að eiga sér stað í rauntíma og er því ef til vill nærtækara að líkja þeim við smávaxna umræðuvefi. Hér er reyndar slóð á dálítið spennandi útgáfu af kallboxi.

Gabbly á augljóslega ættir sínar að rekja til MSN Messenger og svipaðra spjallforrita sem varla þurfa kynningar við á þessum vettvangi eins algeng og þau eru. Það er því deginum ljósara að kennarar munu margir hverjir seint fagna tilkomu þessarar nýjungar, enda getur óheft notkun á spjallforritum verið mjög hvimleið í kennslu svo ekki sé sterkara að orði kveðið. En sem sagt, kerfisstjórar sem lokað hafa fyrir MSN Messenger þurfa að upphugsa betri leið til þess að takmarka aðgang nemenda að rauntímaspjalli. Að vísu hefur sú aðgerð að loka fyrir MSN-ið ekki stoppað einn einasta nemanda sem ég þekki í að spjalla í rauntíma við vini og kunningja á Netinu.

Kostir Gabbly eru hins vegar fjölmargir og áhugaverðir. Hér má taka sem dæmi kennara sem kennir með fjar- eða dreifnámssniði og gerir kennsluefni aðgengilegt á vef, sínum eigin eða annarra. Gabbly gerir þessum kennara og nemendum hans kleift að eiga samskipti um ákveðið efni á ákveðinni vefsíðu, með því einungis að slá inn einni vefslóð. Ef um eigið efni er að ræða hefur kennarinn um tvo kosti velja. Hann getur búið til krækju á Gabbly eða gert Gabbly hluta af sjálfum vefnum. Upplýsingar um seinni valkostinn má finna hér. Gabbly er ólíkt hefðbundnum spjallforritum að hver einstaka spjallgluggi er bundinn við ákveðna vefslóð. Einungis þeir notendur sem eru staddir á viðkomandi vef geta verið þátttakendur í spjallinu. Ég er sannfærður um að það sé vel þess virði að kanna kosti Gabbly enn frekar og hef fullan hug á því að gera það sjálfur í náinni framtíð.

Þess má geta að höfundar Gabbly eru ekki þeir einu sem fengu þá sniðugu hugdettu að tengja saman vefbundið spjallforrit og vefi eða vefsíður. Fyrirtækið 3Bubbles hefur tilkynnt um þróun á svipaðri tækni sem opnuð verður almenningi innan skamms.

Technorati Tags: , , ,


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. sfjalar » Mest lesið í mars04-01-06