Þetta eiga kennarar að kunna!

Skrifað 17. March 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

223760_internet_cafe.jpgBernie Poole er sérfræðingur á sviði upplýsingatækni í námi og kennslu. Í pistli sem hann skrifar á vefinn Education World greinir hann sex þætti sem hafa með að gera hagnýtingu upplýsingatækninnar og hver einn og einasti kennari á að kunna skil á að hans mati. Það væri gaman að vita, lesendur góðir, hvort þið séuð sammála Poole hvað þetta varðar.

  • Algengur notendabúnaður Hver einn og einasti kennari á að geta sýnt færni í notkun almenns notendahugbúnaðar eins og t.a.m. ritvinnslu, töflureiknis, gagnagrunns og framsetningarhugbúnaðar. Að mati Poole þekkja 80% almennra tölvunotenda einungis u.þ.b. 20% af möguleikum almenns hugbúnaðar. Hann spyr sig líka hvort kennarar kunni almennilega á forrit eins og nútíma ritvinnslu? Kennarar eiga að hans mati að geta unnið með gögn í töflureikni og setja þau fram á myndrænan hátt. Kennarar eiga að geta farið með framsetningarforrit eins og Powerpoint og ekki bara að setja saman glærur heldur gera það almennilega. Kennarar ættu einnig að þekkja til teikniforrita.
  • Tæknitengd vandamál
    Hinn almenni kennari á hiklaust að geta brugðist við algengum tæknitengdum vandamálum sem komið geta upp í kennslustofunni. Vandamál þessi geta vissulega verið marskonar en flest þeirra eru smávægileg og stundum er nóg að endurræsa viðkomandi tölvu eða ganga úr skugga um að allir kaplar séru tryggilega festir.
  • Tæknileg aðstoð
    Kennarar eiga vita hvert þeir geta leitað þegar tæknileg vandamál koma upp, þ.e. vandamál sem ekki er á þeirra valdi að leysa. Almennilegir skólar, segir Poole, hafa yfir að ráða starfsfólki sem einmitt hafa það hlutverk á hendi að bregðast við slíkum vandamálum.
  • Netið
    Kennarar eiga að þekkja helstu staði á Netinu sem hafa að geyma efni sem tengist eigin kennslu og kennslugreinum. Kennarar sem eru meðvitaðir um möguleika upplýsingatækninnar, segir Poole, gefa sér tíma til að kanna hvaða efni er til á Netinu sem þeir geta notað til að auðga kennslu sína.
  • Kunnátta í að leita á Netinu
    Allir kennarar eiga að geta leitað markvisst á Netinu eftir upplýsingum og gögnum sem þá vanhagar um eða að gagni geta komið í kennslu og skólastarfi (hér get ég staðist að minnast á Menntagáttina).
  • Áhugi og sveigjanleiki
    Almennt má segja um kennara að þeir eiga að vera fullir áhuga og opnir fyrir nýjungum og þar með nýjum leiðum í námi og kennslu. Góðir kennarar, heldur Poole fram, eru áhugasamir um tækninýjungar og sjá þær sem hugsanlegar leiðir til þess að bæta eigin starf. Góðir kennarar, heldur Poole áfram, eiga stöðugt að vera á höttunum eftir spennandi hugmyndum með það að marki að bæta sig í starfi. Ein besta leiðin að því marki er að taka þátt í opnum umræðum á Netinu þar sem áhugasamir einstaklingar deila með sér hugmyndum og skoðunum um kennarastarfið og allt sem því tengist.

Persónulega er ég nokkuð sáttur við það sem Poole hefur að segja um kunnáttu kennara á sviði upplýsinga- og samskiptatækninnar. Mér finnst þó vanta umfjöllun um sérhæfðan hugbúnað eða vélbúnað sem getur tengst ákveðnum námsgreinum eða sérsviðum eins og t.d. sérkennslu eða kennslu raungreina. Stundum verða kennarar nefnilega að leggja á sig umtalsverða vinnu og eyða miklum tíma í að kynna sér möguleika upplýsingatækninnar á afmörkuðum sérsviðum. Það er sjálfsagt að mínu mati að þekkja og kunna á almennan notendahugbúnað og óhætt að gera þá kröfu á kennara að þeir geti sýnt fram á töluverða færni á þeim vettvangi. Kennsla í ritvinnslu, notkun töflureikna og framsetningaforrita hefst þegar í grunnskóla þannig að fagaðilar vopnaðir háskólagráðu eiga að sjálfsögðu að vera fullfærir í notkun þeirra og vel það.

Ég vil að lokum velja sérstaka athygli á síðasta liðnum sem Poole minnist á og kallar áhuga og sveigjanleika eða “Interest and flexibility” á frummálinu. Án þess að gera lítið úr öðru því sem hann ritar þá held ég að þetta sé eitt það mikilvægasta. Ef hvorki er til staðar vilji eða áhugi þá er hætt við að allar heimsins hugmyndir fari ofan garð og neðan. Ég er líka sannfærður um að skólastjórnendur leika lykilhlutverk í þessu sambandi. Það er ekki síst þeirra að skapa andrúmsloft sem styður við þróun og framsækna hugsun.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni