Horizon 2006 skýrslan spáir fyrir um mikilvægar tækninýjungar í námi og kennslu
Horizon skýrslan spáir fyrir um mikilvægar tækninýjungar sem koma til með að hafa áhrif á nám og kennslu í menntastofnunum á efri skólastigum næstu árum að mati skýrsluhöfunda. Horizon skýrslan er afurð samstarfsverkefnis New Media Consortium og Educause og er gefin út árlega. Horizon 2006 hefur verið birt og er áhugaverð lesning fyrir alla sem vilja kynna sér rökstuddar væntingar sérfræðinga um þróun á næstu 5 árum upplýsingatækninnar í skólastarfi.
Samkvæmt Horizon 2006 skýrslunni er rétt að fylgjast vel með þróun eftirfarandi lausna eða tækninýjungum í náinni framtíð.
Félagsleg tölvun (Social computing)
Hagnýting tölvu- og upplýsingatækninnar í því skyni að örva og styðja við félagsleg tengsl og samvinnu er áberand á Netinu um þessar mundir. Netfundir og hin fjölbreyttustu samskipta- og samvinnuverkæri koma í sífellt auknum mæli í stað hefðbundinna mannamóta og funda og þykir ekki tiltökumál í nútímasamfélagi. Í þessu sambandi má m.a. benda á umfjöllun mína um ELGG námsvettvanginn.
Heimaútgáfa (Personal broadcasting)
Heimaútgáfa á rætur sínar að rekja til einstaklingsbundinna vefja og bloggsíðna og má túlka sem eðlilega framþróun þeirrar tækni. Heimaútgáfa er þegar farin að hafa merkjanleg áhrif á nám og kennslu og má þar t.a.m. benda á aukna notkun kennara á bloggi, “podcasting” og heimabúnum myndskeiðum.
Farsímar og handtölvur
Miðlun náms- og kennsluefnis með aðstoð farsíma og smárra handtölva er ekki fjarlægur draumur heldur nærtækur, raunhæfur veruleiki. Sífellt meiri gagnahraði og auknir möguleikar á birtingu efnis með smáum handtölvum og símum hafa það í för með sér að sífellt fleiri aðilar hafa tekið þessa tækni í þjónustu náms og kennslu.
Leikir
Mikill áhugi er á nýtingu leikja í námi þessa dagana og hafa rannsóknir á þeim vettvangi aukist mjög á síðustu árum. Ég hef lítillega fjallað um það viðfangsefni.
Aukinn veruleiki og nákvæmari myndbirting (Augmented reality and enhanced visualization)
Tæknin sem hér um ræðir er nú þegar í notkun í læknisfræði, verkfræði og fornleifafræði svo einhver dæmi séu tekin. Tæknin vinnur með mjög stór gagnasöfn og gerir rannsakendum í stuttu máli kleift að breyta ásýnd okkar á heiminn með þrívíddarframsetningu gagna sem í fyrstu virðast tilviljanakennd.
Aðstæðu-meðvitað umhverfi og tækni (Context-Aware Environments and Devices)
Framþróun á sviði þess sem kallað hefur verið “context-aware” umhverfa og tækja hefur leitt að sér tækjabúnað og jafnvel heilu herbergin sem forrituð hafa verið til þess að bregðast við mannsröddinni, hreyfingu og öðrum, jafnvel óljósum samskiptaleiðum.
Horizon 2006 skýrsluna má nálgast í heild sinni á pdf sniði án endurgjalds hér.
Frekari lesning:
- Þrjár áhugaverðar upptökur (podcasting) þar sem fjallað er um Horizon 2006 skýrsluna.
- Bæklingur (6 bls.) frá BECTA um mikilvægi nýrrar tækni (Emerging technologies)
- Wearable computers - ágæt íslensk grein sem tengist viðfangsefni Horizon skýrslunnar
Technorati Tags: Horizon 2006, emerging technologies, Educause, social computing


