Close

Svona gerum við

Námsefni

Framhaldsnám í tölvu- og upplýsingatækni við KHÍ

Kennaraháskólinn auglýsir nú umsóknir um nám í framhaldsdeild haustið 2006. Ég vil vekja sérstaka athygli á námi í tölvu- og upplýsingatækni, en meginmarkmiðið með þeirri námsleið er að mennta frumkvöðla sem geta stuðlað að bættri nýtingu tölva- og upplýsingatækni í skólastarfi.

Áherslur í náminu eru sem hér segir:

  • Uppbyggingu námssamfélags sem einkennist af góðum anda, trausti, samskiptum, samvinnu og námi og tengist uppbyggingu fagsamfélags
  • Notkun fjölbreyttra verkfæra og hugbúnaðar
  • Verkefna- og nemendamiðað nám og stafrænar sýnismöppur/verkefnamöppur

Ég hvet alla sem áhuga hafa að kynna sér þessa spennandi námsleið og heimsækja kynningarvef brautarinnar. Auk þess er hægt að kynna sér þá áfanga sem í boði eru í kennsluskrá Kennaraháskólans. Athugið að umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. Allar frekari upplýsingar um nám við framhaldsdeild KHÍ 2006-2007 má finna hér.


Tengt efni

Skráðu athugasemd