
Hugbúnaðurinn inniheldur auk þessa aðgerðir sem notendur öflugri myndvinnsluforrita eiga að venjast eins og t.a.m. valverkfæri, gegnsæi og lagskipta myndinnslu. Artweaver býr yfir dágóðu safni myndsía (filters) og getur unnið með öll helstu skráarsnið sem tíðkast í myndvinnslu (bmp, gif, jpeg, pcs, tga, tiff og png). Artweaver styður við hefðbundin tölvutengd teikniborð og hægt er að sækja viðbætur (plugins) sem þó verða að vera sérhannaðar fyrir hugbúnaðinn.
Artweaver er hugbúnaður í mikilli þróun. Þegar þetta er skrifað er nýjasta útgáfan 0.3.9.9. Ekkert er samt að óttast því Artweaver þessi útgáfa er mjög stöðug og óhætt að setja hana upp og nota.
Artweaver má sækja án endurgjalds og því heppilegt að nýta í skólastarfi. Í fyrsta lagi vegna þess að um mjög skemmtilegt teikniforrit er að ræða sem kemur að góðum notum í t.d. listgreinakennslu og öðru skapandi starfi. Í öðru lagi vegna þess að Artweaver er ókeypis og því fjárhagslega hagkvæmur kostur fyrir skóla og ekki síst nemendurna sjálfa sem geta sótt það án mikillar fyrirhafnar og sett upp á tölvunni heima hjá sér. Það er nefnilega allt of algengt að foreldrar og nemendur hafi ekki aðgang á heimilinu að þeim hugbúnaði sem unnið er með í skólanum. Það er allt of mikið bil á milli tölvunotkunar í skólakerfinu og á heimilum og ef til vill er ókeypis eða opinn hugbúnaður ein leið til þess að brúa það.
Technorati Tags: artweaver


