Fræðslufundurinn er hjá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31 (3. hæð), mánudaginn 27. mars frá kl. 14.30 – 16.00.
Sigurður Fjalar Jónsson er kennari við FJölbrautaskólann í Breiðholti og starfsmaður hjá hugbúnaðarfyriritækinu Hug sem m.a. rekur Menntagátt. Hann hefur reynslu af innleiðingu og notkun Moodle í kennslu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Kennaraháskóla Íslands. Moodle byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju (constructivism) og er einstaklega aðgengilegt og einfalt í notkun fyrir bæði nemendur og kennara.
Fundurinn er sérstaklega hugsaður fyrir tölvukennara, tölvuumsjónarmenn skóla, kennara sem hafa áhuga á nýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi og skólastjórnendur. Aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu velkomnir. Skráning á fundinn fer fram í síma 585 5800 og í tölvupósti (skolaskr@hafnarfjordur.is) til mánudagsins 27. mars (hádegi).
Ef þátttaka verður meiri en ráðgert er, verður að færa fræðslufundinn. Þá verða allir þeir sem hafa skráð sig látnir vita í tölvupósti.
Technorati Tags: Moodle


