Close

Svona gerum við

Námsefni

Maplecroft maps – nytsamlegur upplýsingavefur

30 Mar Uncategorized | Athugasemdir
Maplecroft maps er sérlega notadrjúgur kortavefur sem gagnast getur nemendum og kennurum í kennslugreinum sem hafa lítið sem ekkert með hreina landafræði að gera, ef eitthvað slíkt er þá til. Því Maplecroft maps birtir ekki landfræðilegar upplýsingar einar saman heldur er hægt að kalla þar fram myndrænar framsetningu á gögnum sem snerta félagsleg málefni, hagfræðileg, pólitísk auk upplýsinga sem hafa með umhverfismál að gera.

maplecroft.jpg

Þannig má á einfaldan hátt fá hnattræna yfirsýn notun þjóða heimsins á endurnýtanlegri orku, kostnað við hernaðarhald eða menntunarstig þjóða svo fátt eitt sé nefnt. Einnig er einfalt að afmarka birtinguna við ákveðið land eða landsvæði. Almennar upplýsingar um viðkomandi land eru þá einnig sýnilegar, s.s. fólksfjöldi, meðalaldur, tungumál, trúarbrögð og annað slíkt.

Maplecroft maps vefurinn er opinn öllum en skráðir notendur fá aukinn aðgang að því efni sem hann hefur að geyma. Skráning er endurgjaldslaus og fer fram á vefnum.

Technorati Tags:


Tengt efni

Skráðu athugasemd