Prófaðu Moodle 1.6
Útgáfa 1.6 af Moodle námsstjórnunarkerfinu er nú aðgengileg í betaútgáfu á vefnum www.moodle.org. Útgáfan inniheldur fjölda spennandi nýjunga ásamt margvíslegum lagfæringum og leiðréttingum. Útgáfan er uppfærð daglega og athygli er vakin á því að betaútgáfur hugbúnaðar eru fyrst og fremst gefnar út í því skyni að uppræta allar villur sem enn kunna að vera til staðar áður en formleg útgáfa er tilkynnt.
Helstu nýjungar í Moodle 1.6 eru þessar:
- Unicode
Moodle er nú 100% unicode samhæft og getur því auðveldlega unnið með mörg tungumál í einu. Þetta er stórt og mikilvæg skref sem hefur það í för með sér að við uppfærslu verður að breyta núverandi gögnum. Til þess hefur verið skrifað sérstakt forrit sem einnig er að ganga í gegnum lokaprófanir um þessar mundir. - Handbók og skjölun
Stofnaður hefur verið nýr wikivefur sem hefur að geyma öll skjöl sem viðkoma Moodle, s.s. leiðbeiningar og tæknilegar upplýsingar. Krækt er í þessi skjöl innan úr einstaka Moodle uppsetningu. - Gagnagrunnseining
Nýtt viðfang sem gerir notendum kleift að safna efni í einfalda gagnagrunna. Nytsamlegt til margra hluta. Gagnagrunnseiningin er t.a.m. notuð á moodle.org til þess að birta yfirlit yfir viðföng kerfisins og viðbætur og sniðmát. Gagnagrunnseininguna má hafa opna fyrir nemendur jafnt sem kennara og getur hún því orðið öflugt samvinnuverkfæri. - LAMS
Opna námshönnunarkerfið LAMS er nú samþætt Moodle sem nýtt áfangaskipulag eða námsviðfang. Frekari upplýsingar um LAMS á íslensku má finna hér. Opinber vefur LAMS er hér. - Blogg
Moodle inniheldur nú sjálfstætt bloggkerfi sem m.a. styður við tögun efnis. - Skýrslur
Allar skýrslur hafa verið sameinaðar undir sérstökum skýrsluhluta innan Moodle. Nú er einnig einfalt að bæta við nýjum skýrslum sem auka einingum í kerfið. Hver sem áhuga hefur getur skrifað viðbótarskýrslur og tengt við Moodle í gegnum þennan nýja skýrsluhluta. - Mitt Moodle
Hver nemandi hefur nú miðlægt aðgengi að upplýsingum um áfanga sína og upplýsingar sem þeim tengjast. Stefnt er að því að auka mikilvægi þessa hluta og mun hann því verða í töluverðri þróun á næstunni. - Fjölhópar
Hver einstaka nemandi getur nú verið þátttakandi í mörgum hópum innan sama áfanga. - IMS námseiningar
Moodle getur nú tekið við námseiningum (learning object) sem gefnar eru út samkvæmt IMS staðlinum. - Fjölræn innritun
Hver einstaka Moodle innritun getur nú nýtt fleiri en eina tegund innritunar (enrolment) í einu.


