Fleiri Flickr leikföng

Skrifað 04. April 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Eins og margir vita er Flickr eitt vinsælasta netsamfélag Netheima þar sem sýslað er með ljósmyndir, teikningar og annað myndrænt efni. Flickr er enda einfalt í notkun og öflugt mjög hvort sem ætlunin er að hýsa þar heimilis albúmið, myndir úr bekkjarstarfinu eða myndasafn skólans í heild sinni.

Flickr er ein af fjölmörgum netbundnum þjónustum sem opnað hafa dyr sínar fyrir áhugasömum forriturum og öllum þeim sem búa yfir þeirri þekkingu sem þarf til að skrifa viðbætur sem geta tengst Flickr og unnið á skapandi hátt með gögn þaðan. Þannig er tilorðið veglegt safn skemmtilegra viðbóta sem margar hverjar auka notagildi Flickr á meðan sumar eru bara til gamans gerðar.

Hér eru nokkur sýnishorn:

  • Hvatningarkort (Motivator)
    Breyttu hvaða ljósmynd eða teikningu sem er í áhrifamikið kynningar- eða hvatningarkort. Það gæti ekki verið einfaldara. Veldu mynd af Flickr (með því að afrita slóðina að henni) eða sæktu skrá á eigin tölvu. Semdu grípandi texta og titil og veldu staðsetningu myndar, liti á texta og bakgrunn. Smelltu svo á “Motivate” hnappinn og kortið er til. Hér má sjá vel heppnað sýnishorn á vef Láru Stefánsdóttur. Hér er síðan stórsniðugt safn (pool) hvatningarkorta á Flickr sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
  • Tímarit
    Ég hef áður fjallað um þessa snilldarviðbót sem gerir öllum sem áhuga hafa kleift að hanna einfaldar forsíður á tímarit. Ástæða þess að ég endurtek mig er sú að búið er að bæta forritið nokkuð frá því að ég skoðaði það síðast. Ég hef sjálfur notað þessa sniðugu viðbót við Flickr í skólastarfi og var það ekki einungis ánægjuleg tilbreyting í skólastarfið heldur virkilega gott verkefni fyrir nemendur mína á starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Virknin er ekki ósvipuð og í kortagerðinni Velja mynd. Velja útlit og liti. Velja texta. Verður ekki mikið einfaldara en það. Ekki gleyma að skoða þetta safn með Flickr forsíðum.
  • Talblöðrungurinn (captioner)
    Hér er er einföld leið til þess að bæta texta við ljósmyndir í formi talblaðra, svona eins og í teiknimyndasögum. Svipuð virkni og áður. Hér má sjá nokkur sýnishorn.

Öll þessi forrit má nýta á skapandi hátt í skólastarfi. Látið bara ímyndunaraflið ráða. Mörg fleiri eru til og get ég t.d. bent á Flickr Toys vefinn í því sambandi.

Hér koma að lokum nokkrar slóðir fyrir þá sem vilja kynna sér Flickr enn betur.

Technorati Tags:


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni