
Á námskeiðinu lagt upp með að nemendur meðtaki ekki einungis þær upplýsingar sem þar er miðlað heldur taki virkan þátt í að byggja upp innihald þess með samvinnu, s.s. umræðum, skrifum á wiki vef, rauntímaspjalli, þátttöku í könnunum og með því að deila með sér hugmyndum og reynslusögum.
“Google Earth 101 for Educators” námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa án endurgjalds á meðan bandvídd hýsingaraðila leyfir. Höfundur efnis og umsjónarmaður á námskeiðinu er Quentin nokkur D’Souza. D’Souza er með mastersgráðu í kennslufræði frá háskólanum í York og birtir reglulega vangaveltur sínar og fagleg skrif á bloggvefnum Teachinghacks. Námskeiðið fer fram á ensku og þeir sem hafa áhuga geta gert eftirfarandi:
- Skráð sig á eftirfarandi slóð: http://www.teachinghacks.com/moodle/login/signup.php
- Eftir að skráning hefur verið staðfest þarf að gefa upp skráningarlykil sem er, googleearth101
Technorati Tags: google earth, moodle, teachinghacks


