Eitt og annað um Rube Goldberg vélar og upphafsmann þeirra
Fyrir hartnær 123 árum var í heiminn borinn Reuben Lucius Goldberg, nánar tiltekið á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, þann 4. júlí árið 1883. Goldberg er einn virtasti teiknisagnahöfundur heims og meðstofnandi félags bandarískra teiknisagnahöfunda árið 1946. Félag það veitir árlega verðlaun sem nefnd eru Reuben verðlaunin í höfuð honum og þykja mikill virðingarvottur. Goldberg var frjór höfundur og afkastamikill og teiknaði fyrir fleiri en eitt dagblað í einu þegar hann var upp á sitt besta. Hæstu hæðum náði ferill hans árið 1948 þegar Goldberg varð þess heiðurs aðnjótandi að hljóta hin virtu Pulitzer verðlaun fyrir pólitískar teiknimyndasögur sínar.
Goldberg útskrifaðist með gráðu í verkfræði frá Kaliforníuháskóla á upphafsárum 20. aldarinnar og að námi loknu fékk hann fljótlega vinnu sem verkfræðingur hjá San Fransisókborg. Ódrepandi áhugi hans á teiknisögum varð þess hins vegar valdandi að hann gefur verkfræðina á bátinn eftir nokkra mánaða reynslutíma og þiggur þess í stað starf hjá dagblaðinu San Fransicso Cronicle sem teiknari fyrir íþróttafréttir. Eftir það varð aldrei aftur snúið.
Goldberg skapaði ófáar teiknisagnapersónur á höfundaferli sínum sem margar hverjar nutu almennra vinsælda meðal lesenda. Eitt hugarfóstur höfundarins heldur þó nafni hans öðrum fremur á lofti nú á síðari tímum og nefnist sú persóna prófessor Lucifer Gorgonzola Butts. Prófessor þessi var helst þekktur fyrir ótrúlegar uppfinningar sem voru allar undarlega flóknar og furðulegar, svo ekki sé sterkara að orði kveðið, framkallaðar oft til að leysa af hendi hin einföldustu verkefni, s.s. kveikja á vindli eða opna glugga. Sagt hefur verið um uppfinningar þessar að ekkert mannlegt atferli sé svo ofureinfalt að Goldberg gæti ekki fundið einhverja leið til þess að gera það fáránlega flókið. Goldberg hélt því síðar fram að tilurð prófessorsins hafi verið innblásin af kennara einum sem hann sjálfur hafði verið nemandi hjá.

Teiknisögur Goldberg um prófessorinn úrræðagóða hafa orðið til þess að móta hugtakið Rube Goldberg vél (Rube Goldberg device), en það eru ofurflókin vél sem sett er saman í því skyni leysa af hendi einfalt verkefni. Goldberg er langt því frá eini höfundurinn sem fengist hefur við þetta viðfangsefni en um hann og aðra slíka má lesa í Wikipedia alfræðiritinu.
Rube Goldberg vélar lifa góðu lífi enn þann dag í dag. Þeim bregður öðru hvoru fyrir í vinsælum kvikmyndum,s.s Chitty Chitty Bang Bang, Back to the Future eða Wallace and Gromit svo fáar séu nefndar. Goldberg vélar eru einnig vinsælt viðfangsefni í skólastarfi enda skapandi verkefni þrautalausnir að vinna með og afar skemmtilegar að horfa á. Áhugasamir geta kynnt sér nokkrar slíkar að verki í þessu 9 mínútna langa myndbroti sem fengið er af youtube vefnum vinsæla. Hér má einnig sjá tölvuleik sem hægt er að spila á Netinu og byggir á svipaðri hugmynd og á rætur sínar að rekja til Rube Goldberg véla. Hér er svo annar leikur, en hann verður að kaupa. Að lokum skal bent á opinberan vef um Rube Goldberg á Netinu.Heimild þessa pistils er Wikipedia Alfræðiritið. Ég leitaði einnig heimilda í hinu virta alfræðiriti Britannica Encyclopædia en sú leit skilaði því miður einungis 75 gjaldfrjálsum orðum. Og þar sem ég er þeirrar skoðunar að almenn þekking sem þessi ætti að vera aðgengileg án endurgjalds treysti ég Wikipedia læt Britannica eiga sig.


