Close

Svona gerum við

Námsefni

Engin þörf fyrir Powerpoint lengur? Hvað með Word og Excel?

Thumbstacks er ný og afar áhugaverð vefþjónusta sem opnað hefur dyr sínar gestum og gangandi og býður þeim sem vilja að setja saman, hýsa og miðla hvers kyns glærukynningum í anda Microsoft Powerpoint. Í raun er best að lýsa Thumbstacks sem smættaðri, netbundinni útgáfu af Powerpoint, forriti sem varla þarf að kynna fyrir kennurum geri ég ráð fyrir. Ekki má gleyma að taka það fram að Thumbstacks er aðgengileg án endurgjalds. Kíkið á smá kynningu á Thumbstacks sem að sjálfsögðu er unnin í Thumbstacks.

Thumbstacks er ein ótalmargra vefþjónusta sem sprottið hafa upp á síðustu vikum og mánuðum með slíkum hraða að á Netinu eru margir farnir að tala um nýja .com flóðbylgju og þá oftar en ekki með ákveðnum varnaðartón. Og víst er að sjaldan eða aldrei hafa jafn margir hugmyndaríkir netverjar séð jafn fjölbreytt tækifæri í hvers kyns netbundnum þjónustum, gagnagrunnum, samskiptatækjum, netsamfélögum og vefbundum verkfærum og einmitt núna. Thumbstacks er því svo sannarlega í góðum félagskap óteljandi lausna sem allar eiga það sameiginlegt að keppast um athygli og hylli notenda. Það er auðvitað með öllu ómögulegt að spá með einhverri vissu um hvaða lausnir munu á endanum lifa af, en sumar eru vissulega áhugaverðari en aðrar. Thumbstacks er ein að mínu mati ein slík.

Þegar ég kynni mér hugbúnað eins og Thumbstacks þá velti ég fyrir mér þeim augljósu breytingum sem eru að verða á Netinu og notkun þess. Til að koma betur orðum að þessari þróun hafa verið mótuð hugtök eins og Web 2.0, eða “the read/write web” og vafalítið mörg önnur sem ég þekki ekki. Hugtakið Web 2.0 er áhugavert og hefur náð fótfestu í umræðunni. Það skírskotar til hefðbundinna útgáfunúmera á hugbúnaði og ber sterklega með sér skoðun að vefurinn hafi tekið það örlagaríkum breytingum að við hæfi sé að aðgreina hinn gamla tíma frá þeim nýja. “The read/write web” er eins og nánari útskýring á því hvað felst í þessari nýju útgáfu, nefnilega þeim eðlismun að almennur netverjinn er ekki lengur áhrifslaus meðtakari efnis heldur virkur þátttakandi í sköpun þess, umsýslu og miðlun. Web 2.0 felur einnig í sér grundvallarbreytingu á netbundnum hugbúnaði sem í síauknum mæli er farinn að líkjast almennum notendahugbúnaði í hátt og hegðan. Ágætt dæmi um þetta er einmitt ofangreind þjónusta, Thumbstacks sem, eins og áður hefur verið sagt, er ekkert annað en ofureinfölduð útgáfa af hinu vinsæla og velþekkta forriti Powerpoint.

Það skal fullyrt hér og nú að ekki eru allir á eitt sáttir um hugtakasmíði og oft hástemdar lýsingar þeirra sem skilgreint hafa Web 2.0 hugtakið í ræðu og riti. Þá er gjarnan borið fyrir sig rökum eins og þeim að líkt og velflest annað þá hafi vefurinn þróast í tímans rás og birtingarmynd og virkni hans í dag sé ekkert annað en eðlileg afleiðing framþróunar og algjör óþarfi og rangt að gefa til kynna einhverja stökkbreytingu á því sviði. Þetta er auðvitað hárrétt. Á hinn bóginn má því til svara að líkt og með önnur útgáfunúmer hugbúnaðar þá er Web 2.0 fyrst og fremst ákveðin tímasetning sem ber svo sem ekki að taka sem heilögum sannleika. Það má svo auðvitað spyrja sig hver hafi rétt á því að ákveða slíkar tímasetningar og hvort vefurinn muni framvegis hlíta viðlíka uppfærslum. Hvenær munum við þá sjá Web 2.5?

En hvað sem Web 2.0 vangaveltum áhrærir þá geta flestir ef ekki allir verið sammála um að Netið er ekki lengur sá óvirki hýsingar- og birtingarmáti upplýsinga sem hann áður var. Bloggsíður og félagsleg tengslanet eins og Myspace og Flickr eru næg sönnun þess. Í dag er vefurinn sannarlega upplýsinganáma, en hann er ekki síður félagslegur vettvangur fjölbreyttra lausna sem, eins og dæmin sanna, geta tekið á sig hvaða mynd sem er. Kannski er ágætt að lýsa þessari þróun með því að vísa enn og aftur í Thumbstacks og viðlíka hugbúnað, s.s. Writely og Num Sum svo einungis fátt eitt sé nefnt. Það er því alveg óvitlaust að velta því fyrir sér að hvaða marki hugbúnaður er að leita á Netið, hver ástæða þess sé og ávinningur? Nú þegar getur hver sem áhuga hefur unnið í netbundnum hugbúnaðarvöndli sem líkist ekki einungis Microsoft Office heldur getur vistað skjöl á Office sniði. Er verið að framkvæma þetta vegna einungis vegna þess að þetta er framkvæmanlegt? Eða erum við kannski að verða vitni að grundvallarbreytingu á framsetningu, miðlun og virkni hugbúnaðar? Eins og gefur að skilja ætlar Microsoft stórveldið sér ekki að sitja aðgerðarlaust hjá. Nýjar útgáfur af bæði Office og Windows eru væntanlegar auk þess sem fyrirtækið ætlar sér stórsókn á Netinu í tengslum við hugbúnað sinn, t.a.m. á vefnum www.live.com. Það kemur betur í ljós síðar.

Á meðan risinn rumskar höfum við Thumbstacks, Writely, Num Sum, Zoho Writer og hvað þetta nú allt heitir. Þjónustur sem þessar eru velflestar ókeypis og almennt einfaldar í notkun. Þær eru allar netbundnar og bjóða gjarnan upp á félagslega virkni eins og t.d. Writely ritvinnslan sem einfaldar samvinnu við skjalagerð með því að bjóða fleiri en einum notanda að sama skjalinu. Thumbstacks hefur einnig upp á að bjóða spennandi kost við miðlun efnis, sem felur í sér að hægt er að birta einstaka glærukynnningu samtímis á allt að 5 öðrum nettengdum tölvum. Kynningunni er þá stjórnað af eiganda og það er hann sem sendir þátttakendum sérstaka krækju sem Thumbstacks kerfið býr til. Slíkar kynningar eru virkar í 4 klukkustundir eftir að þær eru gangsettar, en að þeim tíma liðnum er hægt að gangsetja kynninguna aftur ef nauðsyn krefur.

Ég er þeirrar skoðunar að kennurum og öðrum fagaðilum á sviði náms og kennslu sé hollt að fylgjast með þeirri hraðfara þróun sem er að eiga sér stað í hugbúnaðarsmíði á Netinu um þessar mundir. Með því á ég ekki við að nauðsynlegt sé að skoða til hlítar hvern einstaka hugbúnað, hverja einustu þjónustu sem nú ratar á Netið, enda er það nánast óvinnandi vegur. En það eru að skapast spennandi tækifæri með tilkomu öflugra verkfæra, verkfæra sem við höfum ekki haft kost á fyrr. Slík tækifæri ber okkur að skoða og nýta ef ástæða þykir.


Tengt efni

Skráðu athugasemd