Google dagatalið lítur dagsins ljós
Það er opinbert leyndarmál að undanfarna mánuði hafa forritarar Google unnið hörðum höndum að hönnun vefbundins dagatals. Óhætt er að segja að dagatalsins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og síðustu vikur hefur reglulega mátt lesa fréttir og vangaveltur netverja um virkni þess og viðmót. En nú er biðin loks á enda og beta útgáfa af Google Calendar hefur litið dagsins ljós á slóðinni calendar.google.com. Dagatalið er, eins og önnur þjónusta Google, aðgengilegt endurgjaldslaust gegn notendaskráningu. Netverjar sem þegar hafa skráð sig fyrir Gmail netfangi eða annarri Google þjónustu hafa þegar aðgang að Google Calendar.

Google Calendar er hefðbundið dagatal í stafrænum skilningi þess orðs með flestri þeirri virkni sem gera má ráð fyrir af þess háttar lausnum. Þeir sem þekkja Microsoft Outlook og viðlíka hugbúnað af eigin raun vita um hvað málið snýst og mun ég láta það bíða betri tíma að útskýra virkni þeirra í einhverjum smáatriðum. Þar sem ég þurfti endilega að minnast á Microsoft er sjálfsagt að geta þess að netbundin dagatöl eiga enn langt í land hvað varðar að geta boðið upp á alla þá fjölbreyttu kosti sem þrautreyndur hugbúnaður á við Microsoft Outlook býr yfir. Sú staðreynd er hins vegar ekkert einsdæmi þar sem að þróun hugbúnaðar fyrir Netið er mun skemmra á veg komin en almenn hugbúnaðarþróun og þar að auki háð margvíslegum takmörkunum sem lítið svigrúm er til að fjalla um hér og nú.
Á hinn bóginn má færa sterk rök fyrir því að sérhæfðar hugbúnaðarlausnir eins og dagatöl komi til með að þrífast vel á Netinu og kannski má taka svo djúpt í árinni að segja að Netið sé eðlislægt heimkynni þeirra og kjörlendi. Dagatöl samþætta nefnilega einstaklega vel persónulegan og félagslegan vettvang einstaklingsins á sama tíma og samskiptamöguleikar Netsins eru lykilatriði þegar kemur að samþættingu þessa heima. Dagatöl og Netið eiga því vel saman.
Hér er ágætt að staldra aðeins við og velta örlítið betur fyrir sér eðli og notagildi stafrænna dagatala. Stafræn, netbundin dagatöl eru nefnilega annað og meira en borðdagatölin myndskreyttu sem viðskiptavinir banka og sparisjóða fá send heim um hver áramót. Svo miklu meira. Stafrænt dagatal eins og Microsoft Outlook eða Google Calendar er allt í senn, dagatal, skipulagstæki og verkfæri til tímastjórnunar og samvinnu. Google Calendar býður t.d. upp á að notendur deili með sér völdum viðburðum eða heilu dagatölunum. Einfalt er að tímasetja fundi eða hvers kyns viðburði og bjóða boða þáttakendur. Hver notandi getur stofnað og fleiri en eitt dagatal og að sjálfsögðu er innbyggður stuðningur við RSS staðalinn sem einfaldar mjög samskipti við aðrar lausnir eða aðra vefi, t.d. bloggvefi eða námsstjórnunarkerfi. Það er meira að segja hægt að setja smá kóða á vefi sem minnir á einstaka viðburði og gerir öðrum notendum kleift að setja þá inn í sín dagatöl með einum músarsmelli (tekið skal fram að Google ekki er nauðsynlegt að vera með Google dagatal til að nýta þennan möguleika, tölvupóstur dugir). Stórsniðug hugmynd að mínu mati sem vel gæti slegið í gegn.
Notendaviðmót Google Calendar er einfalt og aðgengilegt enda Google þekkt fyrir “minna er meira” viðhorf þegar kemur að notendaskilum. Ajax tæknin er nýtt til hins ítrasta og á heildina litið er útkoman harla góð. Ég bíð samt spenntur eftir gagnrýni netverja sem vafalítið mun verða nóg af á dögum og vikum.
Ég verð að viðurkenna að eins og svo margir aðrir hef ég beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir þessari nýjustu afurð Google sem svo sannarlega lofar góðu. Önnur netbundin dagatöl eru vissulega á boðstólnum og sum hver mjög frambærileg, s.s. Yahoo dagatalið og 30 Boxes, en Google hefur ákveðna sérstöðu. Fyrir það fyrsta hefur Google tilkynnt að forritunarskil (API) dagatalsins verði gerð opinber á næstunni og má því gera ráð fyrir að fjöldi áhugasamra forritara muni birta skemmtilegar viðbætur og/eða samþætta dagatalið öðrum lausnum. Hitt er ekki síður mikilvægt að í hagnýtingu Google Calendar í námi og kennslu er íslenskt viðmót ómetanlegur kostur. Google Calendar er ekki til á íslensku enn sem komið er, en margvísleg önnur þjónusta frá Google hefur verið þýdd á íslensku, s.s. Google leitarvélin og Gmail tölvupósturinn og því má allt eins búast við íslenskri útgáfu af dagatalinu. Svo er bara að krossa fingurnar og vona hið besta.


