Close

Svona gerum við

Námsefni

Picasa – nú á íslensku

18 Apr Uncategorized | 9 athugasemdir
Í kjölfar síaukinna vinsælda stafrænna myndavéla hefur þeim fjölgað mjög sem kjósa að geyma fjölskyldumyndirnar á tölvum sínum í stað hefðbundinna myndaalbúma.

Gæði stafrænna mynda hafa einnig aukist til muna og notkun á myndavélunum orðin einfaldari. Helst gallinn er sá að nú er svo auðvelt og ódýrt að taka myndir að áður en nokkur gerir sér grein fyrir því er tölvan orðin yfirfull af myndum, óflokkuðum og því óaðgengilegum. Þetta kannast væntanlega margir við. Vandamálið er svo ennþá stærra innan fyrirtækja eða stofnana þar sem mikið er unnið með stafrænar myndir. Ágætt dæmi um það eru skólastofnanir þar sem stafrænar myndavélar eru orðnar mikilvægt verkfæri.

picasa.jpg

Hér kemur Picasa hugbúnaðurinn til sögunnar en hann hefur nýlega verið þýddur yfir á íslensku og aukinn nokkuð. Í stuttu máli sagt er Picasa forrit sem gerir notendum kleift að halda utan um myndasafnið í tölvunni á einfaldan og mjög handhægan máta. Hversu stórt og óviðráðanlegt sem það kann að hafa verið.

Picasa inniheldur einnig allar helstu aðgerðir til að breyta og/eða lagfæra myndir. Einfalt er að flokka myndir í sérstök albúm, merkja þær og skrá inn lýsingar á myndefninu. Síðast en ekki síst býr Picasa yfir öflugum verkfærum til að færa myndir yfir á geisladiska, senda í tölvupósti eða prenta þær á pappír.

Picasa er hægt að sækja á vefnum án endurgjalds á slóðinni www.Picasa.com.


Tengt efni

  1. Guðni Ásmundsson10-07-07

    Hvernig seifa ég albúmin, bjó til 3 albúm sem voru svo horfin þegar ég kom næst að tölvunni. HJÁlP !!!!

  2. sfjalar10-07-07

    Það á að vera óþarfi að vista albúmin sérstaklega.

    Sjá frekari upplýsingar um möppur og albúm í Picasa hér: http://wiki.dreifnam.is/index.php/M%C3%B6ppur_og_alb%C3%BAm_%C3%AD_Picasa

  3. guðrún eyberg02-05-08

    hvernig er hægt að breyta í íslensku ???

  4. sfjalar02-07-08

    Veldu Tools>Options. Undir “General” flipanum finnur þú stillinguna “Language used in menus and dialogs” þar sem hægt er að velja “is” fyrir íslensku.

  5. guðrún eyberg02-09-08

    á þetta ekki annars að vera picasa 2

    ef það er þannig virkar þetta ekki :(

  6. Páll Kristjánsson03-10-08

    Sæll sfjalar.

    Hef verið að reyna að breyta yfir á íslensku, án árangurs.

    Er reyndar mjög óreyndur í tölvumálum, þannig að kannski er ég að gera bölvaða vitleysu. Viltu prófa að gera leiðbeiningarnar “foolproof”?

    Takk og kær kveðja

    Palli

  7. sfjalar03-10-08

    Til þess að skilgreina íslenskt notendaviðmót á Picasa 2 er valið eftirfarandi:
    Veldu Tools>Options. Undir “General” flipanum finnur þú stillinguna “Language used in menus and dialogs” þar sem hægt er að velja “System Default (is)”.

    vandamálið er að þessi stilling virkar fínt í útgáfu 2.2.0 (Build 28.20.0). Þú getur séð hvaða útgáfa er uppsett hjá þér með því að velja Help>About Picasa.

    Ég prufaði að sækja Picasa og setja upp hjá mér upp á nýtt og þá birtist íslenska notendaviðmótið. Ég skoðaði og sá að útgáfan var 2.2.0. Síðan prufaði ég að breyta tungumálinu yfir í ensku og endurræsti forritið og þá breytti það um útgáfu og fór upp í útgáfu 2.7 (build 37.49). Ég prufaði svo að skipta aftur yfir í íslenskuna en það virkaði ekki.

    Mig grunar því að nýjasta útgáfa Picasa sé enn ekki til í íslenskri þýðingu. Það er greinilega hægt að sækja forritið og setja upp á nýtt (þarft ekki að henda gömlu uppsetningunni). En þá vantar væntanlega einhverja kosti sem hin nýja útgáfa inniheldur.

  8. Björn Á Guðlaugsson04-15-08

    Sæll vertu,ég er ekki nógu ánægður með þetta,það virðist ekki vera hægt að brenna video á dvd disk og spila í dvd spilara, þannig að þetta annars ágæta forrit er ekki að virka fyrir mig. Kv Björn.PS er von á betri útgáfu þannig að þessi búnaður nýtist betur?

  9. Vilhjálmur Reynisson04-19-10

    Er ekki hægt að ná í Picasa 2 á íslensku.
    Líkaði vel við það

Skráðu athugasemd