Lifandi ljósmyndasýningar með Slide
Slide er ansi sniðug þjónusta sem gerir notendum kleift að setja saman og birta einfaldar myndasýningar sem helst má lýsa sem gagnvirkum myndrenningum. Myndasýningar þessar er hægt að birta á vefsíðu, á skjáborði viðkomandi notanda eða sem skjáhvíli (screensaver). Slide er félagslegur vettvangur að því leitinu til að notendur geta stofnað hópa, deilt myndasýningum og sent hverjum sem er tölvupóst um áhugaverða myndasýningu.
Slide er einfalt í notkun. Notendur geta sótt sérstakan hugbúnað til að spila og setja saman sýningar, eða unnið algjörlega á Netinu. Ég mæli sérstaklega með að þið nýtið ykkur svokallað Bookmarklet sem þið finnið á Slide vefnum, ef þið á annað borð ákveðið að kynna ykkur þessa þjónustu. Það einfaldar mjög samsetningu myndasýninga fyrir þá sem ekki vilja sækja og setja upp sérstakan hugbúnað. Sjálfur var ég sérstaklega glaður þegar ég komst að því að hægt var að nýta myndir úr Flickr beint í Slide myndasýningar.
Þar sem sjón er sögu ríkari birti ég hér að neðan myndrenning sem ég fann á Slide vefnum þegar ég sló upp leitarorðinu “Iceland”. Athugið að ég get bætt við myndum í þennan renning og uppfærist hann þá sjálfkrafa allstaðar þar sem hann er birtur.
Slide er ekki einungis sniðug leið til að birta skemmtilegar myndir á vefsíðum heldur má vel hugsa sér að nýta þjónustu sem þessa í námi og kennslu. Einfalt er að setja texta og krækju við einstaka mynd þannig að þegar smellt er á hana þá flyst notandinn yfir á annan vef. Slide hentar vel til að birta verk nemenda, ljósmyndir úr skólastarfinu, myndir sem tengjast námsefninu og örugglega margt fleira.
Slide má nýta án endurgjalds eins og svo marga aðra netbundna þjónustu þessa dagana. Aðgangur er stofnaður með því einu að smella á “join slide” krækju efst í vinstra horninu á forsíðu vefins og fylla út form þar sem spurt er um notendanafn, tölvupóst og lykilorð. Gæti varla verið einfaldara.
Technorati Tags: slide


