YackPack - áhugaverð nýjung sem nýtist í skólastarfi
Yackpack er nýr og spennandi samskiptavettvangur á Netinu þar sem notendur mynda aðskilda, lokaða eða opna umræðuhópa og skiptast á talskilaboðum sem geta verið allt að 6 mínútna löng hvert. Ólíkt IP símlausnum eins og hinn velþekkti Skype netsími þá byggir Yackpack ekki á rauntíma samskiptum heldur skilja notendur eftir talskipaboð hver til annars sem síðan eru aðgengileg á Netinu. Talskilaboð geta myndað umræðuþræði og hægt er að senda fleiri en einum þátttakanda sömu skilaboðin í einu. Í stuttu máli sagt þá sameinar YackPack helstu kosti netsamfélaga og talhólfa eins og þau þekkjast í hefðbundnum gsm símum. Og satt best að segja þá er þetta nokkuð góð blanda sem getur nýst vel í skólastarfi.
YackPack er nýstárleg leið til samskipta þrátt fyrir að tæknin sem byggt er á sé vel þekkt og hugmyndin í raun sáraeinföld. Ég mæli með því að þið byrjið á því að skoða stutt myndband sem lýsir lausninni mjög vel. Síðan er sjálfsagt að skrá sig fyrir aðgangi og prufa kerfið því það er að sjálfsögðu lang besta leiðin til þess að kynnast möguleikum þess og virkni. Eins og gefur að skilja er nauðsynlegt að eiga hljóðnema, en í kjölfar innrásar netsímanna er það svo sem orðin sjálfsögð eign og slíkt tæki er ekki til staðar þá er hægt að fá hljóðnema mjög ódýrt í dag.

YackPack er hýst lausn, sem merkir að hún er Netbundin og því óþarfi að sækja sérhæfðan hugbúnað til að notfæra sér hana. Það eina sem til þarf er vefskoðari með Flash stuðning (það á ekki að vera vandamál fyrir nútíma vefskoðara). YackPack er aðgengilegt á slóðinni YackPack.net (YackPack.com einnig) og þar geta notendur skráð sig inn og fengið aðgang að eigin samskiptasvæði, eða svæðum því hver notandi getur stofnað fleiri en einn samskiptavettvang eða hóp (Pack eins og það er kallað á ensku). Þar að auki er einfalt að tengja YackPack við hvaða vef sem er og eru til þess tvær leiðir færar:
- Krækja, myndræn eða texti, sem vísar á YackPack vefinn. Slíka krækju má sjá hér að neðan. Hægt er að sækja kóða fyrir svona krækjur á YackPack vefinn eða búa þær einfaldlega til sjálf/ur og krefst slíkt minniháttar þekkingu í vefsmíðum.

- Krækja, myndræn eða texti, sem opnar YackPack vefinn í nýjum glugga. Þetta er auðvitað nánast sama leiðin og hér að ofan nema hvað opnaður er nýr gluggi. Eins og fyrr er kóðann hægt að sækja á YackPack vefinn.

Eins og áður sagði þá býður YackPack upp á fjölmarga áhugaverða möguleika í skólastarfi. YackPack er samskiptavettvangur sem byggir á hljóði (líka hægt að nota texta), sem hefur marga kosti umfram hefðbundna umræðuvefi eða textabundin skilaboðakerfi eins og MSN. Á vefnum YackLearning er fjallað um notkun YackPack í námi og kennslu og hvet ég alla sem áhuga hafa á því að kynna sér hann. YackLearning vísar m.a. á aðra vefi þar sem fjallað hefur verið um YackPack og á einum þeirra rakst ég á eftirfarandi lista þar sem taldir eru upp fjölmargir möguleikar YackPack í kennslu. Hér er þýðing mín á nokkrum þeirra:
- Önnum kafnir kennarar geta sent nemendum skilaboð um heimavinnu, verkefnavinnu eða námið almennt
- Halda úti netbundnum vettvangi þar sem foreldrar geta fengið upplýsingar um skólastarfið.
- YackPack er ágætist viðbót við tölvupóst og hentar vel nemendum sem eiga erfitt með textavinnslu
- Nemendur geta skilað verkefnum á hljóðrænu formi í gegnum YackPack, t.d. má láta nemendur skilgreina ákveðið hugtak eða inntak texta
- Nemendur geta leitað til kennara eftir upplýsingum um verkefni eða viðfangsefni í náminu
- Nemendur geta deilt með sér hugmyndum sem tengjast viðfangsefni námsins
- Kennarar geta veitt nemendum endurgjöf fyrir verkefni eða námið almennt
- Nemendur í tungumálanámi geta átt samskipti við erlenda nemendur
Ofangreindir möguleikar endurspegla einungis brot af fjölmörgum kostum YackPack í námi og kennslu. Sjáið t.d. hér hvernig YackPack er notað í þýskukennslu. Sjálfur er ég mjög spenntur að nýta mér þetta verkefni og hef allskonar áætlanir á prjónunum hvað það varðar. Í því skyni að kynna mér lausnina enn betur hef ég stofnað opið YackPack svæði sem ykkur er velkomið að nýta.
Svona að lokum vil ég segja að ég tók eftir einum meinlegum galla í kerfinu og hann er sá að þegar notaðir eru íslenskir bókstafir í nöfnum þátttakenda þá birtast þeir ekki. Ég hef sent póst á hönnuði YackPack og vakið athygli á þessu og það er vonandi að við þeirri beiðni verði brugðist sem allra fyrst. Allra best væri að fá íslenskt viðmót, en ekki er víst að svo verði. YackPack er enn í beta-útgáfu og verður fullkomlega ókeypis á meðan svo stendur. Höfundar hafa lofað því að ókeypis útgáfa verði alltaf til staðar en um leið gefið sterklega til kynna að auglýsingar verði nýttar til að afla tekna í framtíðinni.
Technorati Tags: yackpack


