Hvað Ísland varðar þá eru breytingarnar helst þær að stór-reykjavíkursvæðið og umhverfið þar í kring sést nú í mun betri myndgæðum en áður. Svo nákvæmar eru myndirnar að auðvelt er að greina hvort bílar séu í bílastæðum við hús. Það er líka mjög skemmtilegt að sjá munin á myndum sem eru teknar að sumri til eða vetri. Auðvitað er óskandi að fá allt landið í svipuðum gæðum, en líklegast verður bið á því. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr Google Earth af Reykjavík og nágrenni, en á þeim sést vel hversu mikil gæðin eru orðin.
Þessi uppfærsla boðar margvíslega möguleika hvað varðar þau not sem hafa má af Google Earth í skólastarfi. Ég sé t.a.m. fyrir mér mörg spennandi verkefni sem skólar í Reykjavík og nágrenni geta unnið með aðstoð þess, nú þegar þetta landsvæði er orðið það greinilegt að hægt er að þekkja landsvæði, götur og hús.


