Machinima – samruni tölvuleikja og teiknimynda
Hugtakið Machinima er samsett úr ensku orðunum „machine“ og „cinema“ og lýsir frumlegri tegund stafrænnar listsköpunar þar sem notast er við tækni úr heimi nútíma tölvuleikja við samsetningu teiknimynda. Machinima er skapandi samruni tölvuleikja og kvikmynda; nýstárlegt og kraftmikið listform sem á uppruna sinn að rekja til nútíma leikjamenningar, teiknimynda og tónlistarmyndbanda en á sterkar rætur í hefðbundinni kvikmyndagerð.
Sköpunarferli Machinima er um margt ólíkt því sem kvikmyndagerðarmenn eiga að venjast í dag, ungir sem aldnir. Machinima krefst ekki dýrkeyptra upptökutækja og ljósabúnaðar eða hæfileika á sviði hefðbundinnar myndsköpunar þeirrar sem nauðsynleg er til teiknimyndagerðar. Allt sem til þarf er þokkalega öflug tölva, hugbúnaður, óbundið ímyndunarafl og vilji og geta til þess að skapa teiknimynd innan afmarkaðs sýndarheims tölvuleikja. Líklegast læt ég þetta hljóma aðeins of einfalt. Og þegar nánar er skoðað kemur í ljós að machinima og hefðbundin kvikmyndagerð eiga margt sameiginlegt, s.s. þegar kemur að handritsgerð, hljóðvinnslu og fleiru.
Í upphafi...
Samkvæmt Wikipedia alfræðiritinu má rekja upphaf machinima allt til áttunda áratugar síðustu aldar og upphafs þess níunda þegar tíðkaðist að setja saman og birta sýnishorn úr væntanlegum og nýútkomnum leikjum. Væntanlega í auglýsingaskyni svipað og þekkist í dag. Fyrstu Machinima teiknimyndirnar komu fyrir sjónir netverja árið 1997 en sjálft hugtakið varð til ári seinna. Með tilkomu sífellt öflugri vélbúnaðar og þar af leiðandi öflugri leikja, sem eins og leikir almennt, nýta sér tækninýjungar samtímans til hins ítrasta hefur machinima fleygt mikið fram. Vinsælir tölvueikir eins og hinn byltingarkenndi Quake er meðal þeirra sem hvað mestu áhrif hafa haft á þessa tegund kvikmyndagerðar. Í dag er vinsælt að notast við leiki á við Unreal, Sims 2, Halo 2 og Battlefield 1942 svo einungis sé stiklað á stóru því ekkert er óhugsandi þegar machinima er annars vegar. Víst er að úrval leikja er mikið og sífellt bætast við vandaðri og öflugri leikir sem að sama skapi boða enn fleiri möguleika fyrir þá sem fá útrás fyrir sköpunargleðina með samsetningu machinima.
Höfundar machinima notfæra sér þrívíddarvélar (game engine) nútíma tölvuleikja, persónur, umhverfi og hluti og færa í hvert það samhengi sem þeir óska. Tónlist og tali er bætt við þannig að úr verður sjálfstætt, heillandi listform.
Takmarkalaus viðfangsefni
Machinima er forvitnilegur afkimi nútíma listsköpunar sem vakið hefur nokkra athygli og var m.a. umfjöllunarefni á síðustu Sundance kvikmyndahátíð auk þess að eiga sér samanstað á eigin hátíðum. Viðfangsefni machinima eru takmarkalaus og eins og í allri list þá skiptast þar á skin og skúrir. Eðli listformsins vegna má segja höfunda að einhverju leiti fanga þeirra þrívíddarheima sem unnið er innan en það hefur þó ekki hindrað þá í að takast á við hin fjölbreyttustu viðfangsefni, klassísk jafnt sem nútímaleg. Hér á eftir verða nokkur dæmi tekin.
Ný listform sækja gjarnan stef og yrkisefni í fastmótaða miðla og svo er það einnig með machinima sem hefur verið notað til að endurskapa þekkt augnablik kvikmyndasögunnar. Hér fyrir neðan má sjá nokkur skemmtileg dæmi um slíkt:
|
A few Good G-men
|
Machinima Beauty
|
|
![]() |
||
|
Vafalítið þekktasta atriðið úr kvikmyndinni
A Few Good Men
|
American Beauty fyrstu 3 mínúturnar |
Machinima leikstjórar skorast heldur ekki undan stafrænum sviðsetningum á vel þekktum bókmenntaverkum og má í því sambandi nefna klassísk verk höfunda eins og Dickens og Bram Stoker. Hinn síðarnefndi er örugglega þekktastur fyrir hrollvekjuna um Drakúla greifa. Þá eru ævintýrin að sjálfsögðu endalausd sagnabrunnur þegar machinima er annars vegar og hafa ýmsir orðið til að nýta sér það.
|
Visiting Scrooge
|
Draculas Guest
|
|
![]() |
![]() |
|
| Ný útgáfa af þekktri jólasögu Dickens. |
Smásaga segja sumir…
|
|
|
Happy Ever After
|
Litla hafmeyjan
|
|
![]() |
||
| Sims 2 útgáfan af Þyrnirós | Ævintýrin eru tímalaus |
Machinima hefur tekið á sig gervi eða ætti maður kannski frekar að segja útgáfuform hefðbundinna sjónvarpsþátta og má í því sambandi benda á Red vs Blue sem notið hafa ómældra vinsæla á óravíddum Netsins. Þegar þetta er ritað hafa yfir 77 Red vs Blue þættir litið dagsins ljós.
Tónlistarmyndbönd eru sérstakur kapituli þegar kemur að machinima og úrval þeirra mikið. Hér á eftir má og heyra sjá hvernig Space Oddity með David Bowie hljómar undir myndskeiðum sem unnin eru úr Sims 2 tölvuleiknum. Nú eða Blaze of Glory, lagið sem Bon Jovi samdi fyrir Young Guns kvikmyndina á sínum tíma. Í þetta skiptið sem undirspil við hinn kraftmikla World of Warcraft. Hér er svo sannarlega af nógu af taka. Algengast er að machinima höfundar leiki sér að því að setja saman tónlistarmyndbönd við tónlist án nokkurrar aðkomu flytjendanna sjálfra, en þó þekkist að tónlistarmenn eða aðilar á þeirra vegum óska eftir að tónlistarmyndand við lag sé gert í Machinima. Þannig er t.d. háttar með Suffer Well myndbandið með Depeche Mode og það er meira að segja til sungið á Simlish, sem er sérstakt tungumál einungis til staðar innan Sims leikjaheimsins. Eins og gefur að skilja eru þessi myndbönd misjöfn mjög að gæðum. Mörg eru frekar illa saman sett og lítið í þau spunnið, önnur eru alveg ágæt að gæðum og eitt og eitt eru svo góð að þau jafnast fyllilega á hefðbundin tónlistarmyndbönd. Tökum nokkur dæmi.
|
I’m Still Seeing Breen
|
Suffer Well
|
|
|
Skaterboy
|
Freeze frame
|
|
|
Move over darling
|
Someone watching over me
|
|
|
Speed of Sound
|
Concrete Angel
|
|
|
Must have been love
|
Skemmtilegt Star Wars lag |
|
Ég læt þetta nægja í bili í þessari umfjöllun minni um machinima. Ég mun fjalla meira um þetta nýstárlega listform á næstunni og þá m.a. tengja það við skólastarf, en machinima býður upp á einstaklega spennandi möguleika þegar kemur að því að blanda saman tölvuleikjum, listsköpun og skapandi þrautalausnum í skólastarfi. Að lokum minni ég á að hægt er að gerast áskrifandi að þessu bloggi með því að smella hér.







