Nú geta allir teiknað í þrívídd

Skrifað 01. May 2006
2 Athugasemdir frá lesendum

Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu.

Sketchup kom fyrst á markaðinn árið 2001 og hefur frá þeim tíma vaxið að mjög að vinsældum enda bæði öflugt og einfalt í notkun. Ekki spillti verðið fyrir vinsældunum því Sketchup hefur frá upphafi verið tiltölulega ódýr hugbúnaður miðað við sambærileg forrit. Ástæða þess að Sketchup nú er hægt að sækja án endurgjalds á Netið er sú, að fyrir stuttu síðan keypti Google fyrirtækið framleiðendur Sketchup með húð og hári og hefur nú tekið þetta skref til að gera hugbúnaðinn enn aðgengilegri en áður. Það skal strax tekið fram að ókeypis útgáfa Sketchup er nokkuð skert, þ.e. hún inniheldur ekki alla möguleika Sketchup 5, sem er nýjasta útgáfa hugbúnaðarins og fáanleg gegn endurgjaldi. Sá er gallinn helstur á gjöf Njarðar að með ókeypis útgáfunni eru einstaka teiknimöguleika ekki til staðar auk þess sem ekki er hægt að vista myndir í sérstökum þrívíddarsniðum eða sem stutt myndskeið. Hitt er annað mál að Sketchup er kjörið verkfæri fyrir kennara og nemendur sem hafa áhuga á því að kynna sér sérlega spennandi heim þrívíddarteikninga á einfaldan og fljótlegan hátt.

Ef ég ætti að velja tvö orð til þess að lýsa Sketchup yrðu orðin einfalt og fljótlegt örugglega fyrir valinu. Sketchup er ótrúlega einfalt í notkun og það er einmitt þessi einfaldleiki sem gerir það svo aðlaðandi valkost í skólastarfi í grunnskóla jafnt sem á framhaldsskólastiginu. Nemendur geta unnið með teikningar í þrívídd á frumlegan og skapandi hátt og það er enginn skortur á verkefnum sem hægt er að vinna með aðstoð svona hugbúnaðar. En Sketchpad er ekki aðeins einfalt í notkun heldur er hér um að ræða afar öflugan hugbúnað sem nýttur er af arkitektum jafnt sem leikjahönnuðum og fjölmörgum öðrum sem vinna með þrívíddarteikningar. Rétt er samt að geta þess að Sketchpad er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir þrívíddar teikniforrit eins og 3D Max, Autocad eða Maya til þess er hann ekki nógu öflugur ennþá.

Í stuttu máli sagt þá er Sketchup er eitt af þessum frábæru verkfærum sem eru í senn öflug og svo einstaklega skemmtileg í notkun að það er bókstaflega erfitt að slíta sig frá þeim. Og það er meira til. Innifalið í Sketchup er aðgengi að vöruhúsi teikninga, eins og það er kallað, eftir aðra Sketchup notendur þar sem finna má allt frá hundakofum upp í stórfenglegustu hallir. Þannig er, með einum músarsmelli, hægt að sækja teikningar annarra og nýta í eigin verkum eða þá senda eigin verk í safnið og gera aðgenglegt öðrum. Síðast en ekki síst er ákaflega einfalt að tengja saman Sketchup og Google Earth og staðsetja sköpunarverk sín hvar sem er í heiminum. Þetta er frábær möguleiki sem gaman er að leika sér með og getur einnig komið að góðum notum í kennslustofunni.

Landslagsarkitektúr
 
Arkitektúr
sketchup1.jpg   sketchup2.jpg
Sketchup notað við garðhönnun  
Svona lítur nýja húsið út
     
Heildarmynd
 
Meiri arkitektúr
sketchup3.jpg   sketchup4.jpg
Þetta er magnað   Viðbygging við skóla

Ég er sannfærður um að þetta nýjasta útspil Google á eftir að vekja mikla athygli og það verður gaman að fylgjast með því hvernig kennarar koma til með að nota þennan spennandi hugbúnað, hér á landi sem og annarsstaðar.


Tengt efni

2 athugasemdir við “Nú geta allir teiknað í þrívídd”

  1. Þorgeir skrifar:

    hæ, er eitthvað námskeið til að læra betur á þetta forrit

  2. sfjalar skrifar:

    Ekki svo ég viti. Allavega ekki hér á landi. Það væri hins vegar áhugavert að búa til slíkt námskeið.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni