Nám og skólastarf í flötum heimi

Skrifað 04. May 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

theworldisflatcover.jpgÉg hef nýlokið við að lesa bókina “The World is Flat” eftir hinn virta pistlahöfund og Pulitzer verðlaunahafa Thomas L. Friedman og get hiklaust mælt með henni við hvern sem er.

Í bókinni fjallar Friedman um tækniþróun nútímans og alþjóðavæðinguna sem hún hefur gert mögulega. Fyrst og fremst fjallar bókin þó um mikilvægi þess að við áttum okkur á því hvað það merki fyrir okkur vesturlandabúa að lifa og starfa í þessum nýja heimi sem nú er að verða til. Friedman jákvæður í garð alþjóðavæðingarinnar, en að sama skapi gagnrýninn á heimaland sitt Bandaríkin og hvetur bæði stjórnvöld og þegnana alla til aðgerða. Friedman notar sterk orð til að lýsa ástandinu enda telur hann það grafalvarleg. Hann gerir ágæta grein fyrir því hvernig einstaklingar, stjórnvöld og heilu samfélögin verða að aðlaga sig að þessum breytta, flata heimi ef ekki á illa að fara. Og það er satt best að segja erfitt að vera annað en sammála honum eftir lestur bókarinnar.

Friedman segist hafa uppgötvað að heimurinn væri í raun flatur þegar indverskur framkvæmdastjóri hjá þarlendu hugbúnaðarfyrirtæki útskýrði fyrir honum hvernig fyrirtæki í ólíkum heimsálfum ættust nú við á jafnræðisgrundvelli hvert við annað. Samskipta og tölvutæknin hefur rutt úr vegi öllum þeim múrum sem áður komu í veg fyrir að fyrirtæki gætu keppt hvert við annað eða starfað saman á alheimsvettvangi í stað einungis á heimamarkaði. Í þessum skilningi er heimurinn að fletjast út. Staðsetning skiptir ennþá miklu máli, en annan á annan hátt en áður. Fyrir þrjátíu árum síðan hefði maður, sem ætti kost á því að velja að fæðast snillingur í Mumbai annarsvegar eða meðalmaður í smábæ í Bandaríkjunum hinsvegar þá hefði sá hinn sami örugglega valið bandaríska meðalmennsku. Í dag veldi hann snilligáfuna enda bjóðast vel menntuðum einstaklingum í Kína eða á Indlandi tækifæri til jafns á við bandaríska meðalljónið.
Friedman er sannfærður um að þessi þróun verði ekki stöðvuð. Það er engin leið að stöðva þá krafta sem eru að verki, nema þá að valda sjálfum sér stórtjóni um leið. Þjóðir sem á síðustu öld hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að viðhalda eigin viðhorfum, hefðum og vinnumarkaði með því að fela sig á bak við múra og viðskiptahöft hafa staðnað og eiga sum hver í miklum erfiðleikum í dag. Á hinn bóginn hafa þær þjóðir sem hafa opnað sig fyrir alheiminum dafnað sem aldrei fyrr.

Niðurstaða Friedmans er einföld. Við verðum í fyrsta lagi að átta okkur á því að við búum í flötum heimi og í öðru lagi að sætta okkur við það og nýta þá möguleika sem það hefur í för með sér. Hvort sem við kjósum það eða ekki, þá er okkur sem einstaklingum og þjóð lífsnauðsynlegt að búa okkur undir þessar breytingar sem margar hverjar hafa þegar átt sér stað. Í þeirri umbreytingu sem verður að eiga sér stað er skólakerfið og öflug símenntun þegnanna einn allra mikilvægasti þátturinn.

Ég hef tekið saman nokkrar tilvitnanir úr bókinni sem hafa með nám og menntun að gera og birti hér að neðan. Auðvitað er miklu meira rætt um þetta viðfangsefni í bókinni en þessar glefsur ættu að gefa ágæta mynd af þeirri heimsmynd sem Friedman boðar:

  • China is now becoming the the country that develops the largest number of university graduates. (bls. 35)
  • Application s from Chinese and Russian high scool students to attend Yale as undergraduates have gone from a total of 30 Chinese from the class of 2001 to 276 for the class of 2008 and 18 Russians for the class of 2001 to 30 for the class of 2008. (bls. 193)
  • Sure, some of the knowledge workers in America may have to move horizontally into new knowledge jobs, because of the competition from China. But with a market that big and complex, you can be sure that new knowledge jobs will open up at decent wages for anyone who keeps up his or her skills (bls. 228).
  • Those American low-skilled workers doing fungible jobs – jobs that can easily be moved to China – will have a problem. There is no denying this. Their wages are certain to be depressed. In order to maintain or improve their living standards, they will have to move vertically, not horizontally. They will have to upgrade their education and upgrade their knowledge skill… (bls. 229)
  • That is why America, as a whole, will do fine in a flat world with free trade – provided it continues to churn out knowledge workers who are able to produce idea-based goods that can be sold globally and who are able to fill the knowledge jobs that will be created… (bls. 230)
  • The students, from the Indian Institute of Technology in Madras, go online to help students in Singapore, from grades six to twelve, on their math homework. (bls. 234)
  • There is only one message: You have to constantly upgrade your skills. There will be plenty of good jobs out there in the flat world for people with knowledge and ideas so seize them. (bls. 237)
  • “Girls, when I was growing up, my parents used to say to me, “Tom finish your dinner – people in China and India are starving.” My advice to you is: Girls, finish your homework – people in China and India are starving for your jobs.” (bls. 237)
  • Being adaptable in a flat world, knowing how to “learn how to learn,” will be one of the most important assets any workar can have, because job churn will come faster, because innovation will happen faster. (bls. 239)
  • It is a truism, but the more educated you are, the more options you will have in a flat world. (bls. 244)
  • What makes America unique is not that it built MIT, or that its grads are generating economic growth and innovation, but that every state in the country has universities trying to do the same. (bls. 244)
  • When I asked Bill Gates about the supposed American education advantage – an education that stresses creativity, not rote learning – he was utterly dismissive. In his view, those who think that the more rote learning systems of China and Japan can’t turn out innovators who can compete with Americans are sadly mistaken. (bls. 264)
  • Remember, in Chine when you are one in a million – there are 1300 other people just like you (bls. 265)
  • The American education system from kindergarten throught twelfth grade just is not stimulating enough young people to want to got into science, math and engineering. (bls. 270)
  • The amazing thing is that it is hard to get women into computer science now, and getting worse. Young women in junior high are told this is a really wretched lifestyle. (bls. 275)
  • Tertiary education is more critical the flatter the world gets, because technology will be churning old jobs, and spawning new, more complex ones, much faster than during the transition from the agricultural economy to the industrial one. (bls. 289)
  • JFK wanted to put a man on the moon. My vision is to put every American man or woman on campus. (bls. 290)

Ég vek sérstaka athygli á mjög góðri samantekt og umfjöllun um bókina á Wikipedia. Einnig má benda á að ekki eru allir sammála Friedman eða halda upp á hann sem stíllista. Hér er t.a.m. mjög gagnrýnin umfjöllun um bókina.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni