Coming of age - web 2.0 fyrir kennara

Skrifað 07. May 2006
Flokkur: lestur, web 2.0
Engar athugasemdir frá lesendum

coming_of_age.jpg“Coming of Age: an introduction to the new world wide web” nefnist nýútkomin bók um þá þróun vefbundinna lausna sem kennd hefur verið við “web 2.0″ og þau fjölmörgu not sem kennarar geta haft af slíkum lausnum í námi og kennslu. Bókinni er einungis dreift á Netinu á pdf sniði og er aðgengileg án endurgjalds. “Coming of Age” er ekkert minna en skyldulesning fyrir alla kennara sem áhuga hafa á því að nýta upplýsingatæknina á markvissan hátt í skólastarfi.

“Coming of Age” er samstarfsverkefni 14 einstaklinga sem hver á sína grein í bókinni. Allir eru þeir leiðandi aðilar þegar kemur að notkun tækninnar í skólastofunni. Bókin er ritstýrð af Terry Freedman sem einnig er upphafsmaður verkefnisins og drifkrafturinn á bak við útgáfuna. Viðfangsefni bókarinnar eru eftirfarandi:

  • Blogg í námi og kennslu
  • RSS
  • Myndir og myndasöfn
  • Podcasting
  • Videóblogg
  • Wikivefir
  • Félagsleg bókamerkjasöfn
  • Umræðuvefir og smáskilaboð

Markmiðið með útgáfu bókarinnar er að veita áhugasömum kennurum faglega hvatningu ef svo má segja og hagnýtan stuðning vilji þeir reyna einhver af þeim fjölmörgu verkfærum sem Netið hefur uppá að bjóða í námi og kennslu. Bókin er kjörin leið til þess að kynnast nýjum, spennandi straumum og stefnum í starfi kennara auk þessa að vera fróðleg uppspretta skemmtilegra hugmynda.

Þess má geta að greinarhöfundar halda allir úti eigin bloggvefjum sem mjög áhugavert er að fylgjast með. Smellið á nöfn þeirra hér að neðan til að kynna ykkur viðkomandi vef.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni