Ókeypis myndir eða ódýrar mjög
Ég nota mikið af stafrænum ljósmyndum og teikningum hverskonar í starfi mínu sem kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og einnig við hönnun á markaðs- og kynningarefni fyrir hugbúnaðarfyrirtækið Hug hf. Við öflun mynda hef ég um tvær leiðir að velja. Ég leitað eftir myndum og keypt á einhverjum af fjölmörgum myndabönkum Netsins eða ég get sótt myndir ókeypis á Netið, þ.e. ef leyfisskilmálar heimila slíkt.
Ég hef átt viðskipti við íslenska myndabankann NordicPhotos og get hiklaust mælt með honum enda bæði myndirnar og þjónustan góð. Því er hinsvegar ekki að neita að margir myndabankar eru ansi dýrkeyptir og því hef ég freistast til þess að leita annarra leiða og reyndar með nokkuð góðum árangri.
Síðustu mánuði hef ég mikið notast við iStockphoto myndabankann sem er einskonar samfélag ljósmynda þar sem þeir geta sent inn myndir og selt á vefnum ef gæði þeirra standast kröfur stjórnenda. Á iStockphoto er stórt úrval af vönduðum (og ekki svo vönduðum) myndum á afar hagstæðu verði, eða frá 1$ – 10$ fyrir mjög stóra mynd. Ég er venjulega að borga 3$ fyrir mynd í góðum prentgæðum sem verður að teljast einstaklega hagstætt verð þegar um góða ljósmynd er að ræða. iStockphoto vefurinn er faglega unninn og býr yfir öllum helstu eiginleikum hefðbundinna myndabanka, s.s. góðri leitarvél, ljósaborðum (lightboxes) og forskoðun mynda. Ég mæli því hiklaust með iStockphoto fyrir alla þá sem eru á höttunum eftir góðum en ódýrum ljósmyndum eða hvers kyns teikningum að nota í kynningar eða kennsluefni.
Nýlega opnaði annar álíka vefsamfélag ljósmyndara sem selja verk sín á hagstæðu verðu og nefnist hann Fotolia. Ég er þessa dagana að prufa Fotolia og er óhætt að segja að hann lofar góðu. Verð mynda á Fotolia er sambærilegt við iStockphoto og úrvalið þar er einnig mikið. Fotolia vefurinn virðist faglega unninn við fyrstu sýn og er þægilegur í notkun.
Það verður að segjast eins og er að ókeypis ljósmyndir eru öllu erfiðari viðureignar, þ.e. þegar farið er eftir leikreglum um höfundarétt og leyfisskilmála sem auðvitað allir eiga að gera. Þegar ég hef leitað eftir myndum sem ég get notað án endurgjalds í eigin verkum hef ég nýtt mér Yotophoto leitarvélina. Yotophoto leitar í myndasöfnum sem hafa að geyma myndir sem leyfilegt er að nota án endurgjalds og sparar manni þannig tíma við að leita á hverjum einstaka myndabanka fyrir sig. Að vísu verða notendur að gera sér grein fyrir því að um fjölbreyttar leyfistegundir getur verið að ræða, en í meginatriðum er um að ræða ókeypis myndir. Í einstaka tilfellum þarf viðkomandi einnig að skrá sig inn á þann myndabanka sem hefur að geyma þá mynd se ætlunin er að sækja. Önnur viðlíka leitarvél nefnist Everystockphoto. Ég hef takmarkaða reynslu af Everystockphoto en sýnist hún vera frekar svipuð og Yotophoto en þó ekki eins mikil að gæðum. Almennt má segja um ókeypis myndirnar að þær eru mun takmarkaðri að gæðum en þær sem borgað er fyrir auk þess sem úrvalið er mun minna. Látið það samt ekki hindra ykkur í að leita eftir ókeypis myndum á Netinu með aðstoð Yotophoto eða Everystockphoto. Munið bara að í myndaleit á Netinu sem og öðrum mannanna verkum þá er þolinmæði dyggð.



May 16th, 2006 at 9:53
Hæ Sigurður,
til hamingju með styrkinn frá Menntamálaráðuneyti. Það gladdi mig mjög að sjá.
May 16th, 2006 at 2:54
Ég ætlaði einmitt að fara stinga upp á að leita að creative commons töggum á flickr sem dæmi áður en ég sá yotophoto. Sniðugt dæmi.