Vefglósur með Google

Skrifað 17. May 2006
Flokkur: ókeypis
Engar athugasemdir frá lesendum

google_notebook_logo.gifGoogle hefur opinberað enn eina nýja þjónustu og í þettað skiptið er um að ræða Netbundna glósubók sem gengur undir nafninu Google Notebook. Google Notebook er viðbót við Internet Explorer eða Firefox vafrann sem gerir notendum kleift að safna saman og halda til haga á einum stað textabútum og myndum af Netinu. Google Notebook er stórsniðug lausn sérstaklega handhægt verkfæri fyrir nemendur eða kennara sem eru að vinna á markvissan hátt með heimildir af Netinu.

Google Notebook er ekki frumleg hugmynd enda margar álíka hugbúnaðarlausnir litið dagsins ljós. Sjálfur hef ég nýtt eina slíka, sem nefnist Onfolio, með góðum árangri, þ.e. allt þangað til það var selt Microsoft sem gerði hugbúnaðinn hluta af Microsoft Live veflausninni sem óðum er að taka mynd. Onfolio er þegar til í beta útgáfu sem hluti af Microsoft Live toolbar tækjastikunni. Ég hef notað þessa tækjastiku með Internet Explorer undanfarnar vikur, en finnst hún frekar óspennandi. Ég er þar að auki Firefox notandi og kann illa við þá aðferð Microsoft að gefa út hugbúnaðarlausnir sem útiloka samkeppnisaðila, sem því miður vill brenna við.

Ég geri því fastlega ráð fyrir að kynna mér vel Google Notebook á komandi dögum og fyrsta sýn lofar bara góðu. Þessi vefbundna glósubók er afar einföld í notkun og notendaviðmótið er mjög í anda annarra þjónusta frá Google. Til þess að nýta Google Notebook er fyrst sótt lítil viðbót (plugin), sem eins og staðan í dag er fáanleg fyrir Internet Explorer og Firefox. Þegar viðbótin hefur verið sett upp birtist hnappurinn “Open Notebook” neðst í hægra horni vefskoðarans og má nota hann til þess að opna glósubókina eða bæta við glósum. Notendur geta einnig stytt sér leið með því að skyggja þann texta eða mynd (eða bæði) sem ætlunin er að glósa og velja “Note this” valkost af hægri valseðlinum sem þá birtist. Glósurnar í Google Notebook eru aðgengilegar á Netinu og geta notendur valið hvort glósubækurnar tilheyra þeim einum eða hvort þeir vilja opna þær öðrum notendum. Þannig má hugsa sér að hópur sem er að vinna saman að ákveðnu verkefni geti deilt með sér glósubók með aðstoð Google Notebook.

google_notebook.gif

Einfalt er að sýsla með glósur eftir að þær hafa verið færðar í kerfið. Hægt er að vinna með texta þeirra og raða þeim á hvern hátt sem hentar með því einu að draga til. Þá er hægt að búa til fyrirsagnir í glósusafnið og þannig kaflaskipta glósunum sem það hefur að geyma. Einfalt er að leita í glósusafninu. Hver notandi getur búið til fleiri en eitt glósusafn sem einnig er öflugur kostur, t.a.m. þegar unnið er með fleiri en eitt verkefni.

Google Notebook hefur hlotið blendnar viðtöku Netverja og benda margir á að svipaðar lausnir hafi lengi verið til og Notebook hafi lítið sem ekkert umfram þær að bjóða. Auk þess benda margir á að ekki sé hægt að merkja eða tagga einstaka færslur í Notebook eins og svo algengt er orðið á Netinu og er það vissulega stór galli. Á hinn bóginn má benda á að um beta útgáfu er að ræða þannig að við eigum örugglega eftir sjá uppfærslur og spennandi nýjungar í náinni framtíð.

Ég mæli með því að þið kynnið ykkur þessa sniðugu lausn. Hún er vel þess virði og er skemmtileg og gagnleg viðbót við ört vaxandi flóru ókeypis forrita og þjónusta sem nýta má í skólastarfi.

Technorati Tags:


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni