Close

Svona gerum við

Námsefni

Hvað er “Google jockeying” og hvernig tengist það kennslu?

20 May Uncategorized | Athugasemdir
Dr. Chen kennir sögu vesturlanda og til þess að lífga upp á kennslustundirnar nýtir hann Google leitarvélina á þann hátt, að í hverjum tíma fær nemandi það hlutverk að leita eftir áhugaverðu efni sem tengist viðfangsefni tímans samtímis og fjallað er um það á hefðbundin hátt.

Leitarferlinu öllu og niðurstöðum leitarinnar eru birtar nemendum með aðstoð skjávarpa auk þess sem þeir hafa auk kost á því að senda smáskilaboð (msn) til þess sem stýrir leitinni. Nemendur í tímum hjá Chen skiptast á um að taka að sér hlutverk “Google Jockey” eins og það er kallað og að þeirra mati er það bæði krefjandi og lærdómsríkt. Dr. Chen hefur einnig gert tilraun með að snúa þessu ferli við, þannig að á meðan nemendur flytja eigin fyrirlestra, vafrar hann um Netið og birtir bekknum áhugavert efni sem hann finnur og tengist umfjöllun nemandans.

“Google Jockey” er þátttakandi í fyrirlestri eða kennslustund sem hefur það hlutverk á hendi að vafra um Netið á meðan kennslan fer fram og leitar eftir efni eða birtir efni sem kennarinn fjallar um í kennslunni. Þrátt fyrir að hugtakið tengist Google leitarvélinni á augljósan hátt má auðvitað notast við hvaða leitarvél sem er, eða einfaldlega slá beint inn slóðir að vefjum sem tengjast viðfangsefninu.

“Google Jockeying” á uppruna sinn að rekja til háskólans í suður Kaliforníu, en fram til þessa hefur iðkun þess verið frekar takmörkuð. Ég veit ekki til þess að kennarar hérlendis hafi reynt þessa tækni í kennslustundum en henni svipar samt örlítið til þess sem þátttakendur á UT2006 fengu að reyna í Grundarfirði fyrr á árinu. Þá var reyndar einungis um að ræða MSN skilboð sem varpað var á veggi, en hugmyndin er svipuð, þ.e. að virkja betur þátttakendur og nálgast viðfangsefnið og ýmsar hliðar þess á fjölbreyttari máta.

Þeir sem áhuga hafa á því að kynna sér “Google Jockeying” betur geta sótt stutta kynningu á pdf sniði á vef Educause sem heitir “7 things you should know about Google Jockeying”. Þess má geta að Educause hefur gefið út fleiri slík upplýsingarit sem hægt er að leita eftir á Educause vefnum.

Ef einhver lumar á skemmtilegri þýðingu á hugtakinu “Google Jockey” eða “Google Jockeying” er það vel þegið.


Tengt efni

Skráðu athugasemd