Tabblo

Skrifað 27. May 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

tabblo_nav.gifTabblo er áhugaverð vefþjónusta þar sem notendur geta hýst og sýslað með myndir ekki ósvipað og fjölmargar viðlíka þjónustur sem þegar hafa náð ágætri fótfestu á Netinu, s.s. Flickr, SmugMug eða Zoto svo fátt eitt sé nefnt. Tabblo sker sig hins vegar úr fjöldanum hvað framsetningar mynda og möguleikum notenda á því að raða saman myndum og texta þannig að úr verði skemmtilegar myndasíður. Þessum myndasíðum, sem nefndar eru “Tabblo” líkt og þjónustan sjálf, má svo deila með öðrum eða prenta.

Þar sem sjón er sögu ríkari setti ég saman myndasíðu/tabblo um UT2006 ráðstefnuna sem haldin var í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í marsmánuði sl. Svona myndasíður er mjög einfalt að skapa með Tabblo.

Tabblo þjónustan er einföld í notkun og það gladdi mig mjög sem ákafan Flickr notanda að geta sótt allar myndirnar mínar úr Flickr beint yfir í Tabblo með einni aðgerð. Ég hef samt engin áform um að færa mig alfarið yfir í Tabblo sem ennþá kemst ekki með tærnar þar sem Flickr hefur hælana. Ég er hins vegar mjög hrifinn af myndasíðunum sem hægt er að setja saman í Tabblo og mun örugglega gera tilraun með notkun þeirra í kennslu á Starfsbraut FB næsta haust.

Það er vel ómaksins virði að kynna sér Tabblo sem enn er í mikilli þróun. Tabblo er ókeypis þjónusta þannig að það kostar ekkert nema smá tíma að skrá sig sem notanda, hlaða inn myndum og setja saman myndasíðu. Svona bara til að prófa. Svo má alltaf skoða myndasíður annarra notenda. Hér eru nokkur skemmtileg sýnishorn:


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni