Nú þegar inniheldur Kerfisvefurinn sjálfstæðar umræður fyrir kerfisstjóra og UT-kennara en væntanlega er ekkert því til fyrirstöðu að stofna til umræða á fleiri sviðum ef áhugi er fyrir slíku. Einnig er stefnt að því að safna saman námsefni á vefnum og gera aðgengilegt öllum notendum.
Kerfisvefurinn er ágætt dæmi um hvernig nýta má Moodle námsumhverfið til að skapa netbundinn samvinnuvettvang án mikillar fyrirhafnar eða kostnaðar. Auðvitað er það svo undir þátttakendum komið að gera hann að lifandi samfélagi. Ég hvet því alla sem áhuga hafa á þessum málum að skrá sig notendur á Kerfisvefinn og taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum umræðum um upplýsingatækni í skólastarfi og allt sem því tengist.



