Styrkir til þróunar á stafrænu námsefni

Skrifað 02. June 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Menntamálaráðuneytið auglýsir á vef sínum styrki til námsefnisgerðar. Um er að ræða gagnvirkt stafrænt námsefni sem verði aðgengilegt á netinu. Áhersla er lögð á námsefni í ensku, dönsku, íslensku og stærðfræði sem nýtist á mörkum grunnskóla og framhaldsskóla. Námsefnið skal nýtast sem stuðningur við einstaklingsmiðað nám og sveigjanleika í kennslu. Einnig skal námsefnið vera kennslufræðilega og tæknifræðilega frambærilegt og viðmót notenda aðgengilegt. Samvinna kennara og tölvufyrirtækja er æskileg. Þýðing á erlendu stafrænu námsefni kemur til greina.

Í styrkumsókn þarf að koma fram hvernig námsefnið tengist markmiðum aðalnámskráa, hvernig byggt er á notkun upplýsingatækni og hvernig gæðakröfur skuli uppfylltar. Í verkáætlun skal gera ráð fyrir að námsefnið verði tilbúið í ágúst 2007 og það verði öllum opið til notkunar a.m.k. í eitt ár.

Allar frekari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á vef Menntamálaráðuneytisins.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni