Samkvæmt frétt á vefnum sem birt var 2. mars sl. var veittur frestur til 1. apríl að skila inn athugasemdum og ábendingum varðandi drög að namskrám sem birt voru á vefnum 1. febrúar sl. Á þeim tíma mátti finna drög að nánast öllum endurskoðuðum námskrám grunn- og framhaldsskóla á vefnum, þ.e. að námskrám í upplýsingatækni undanskyldum. Í dag er 3. júní og enn bólar ekkert á drögum að námskrám í upplýsingatækni! Hvað veldur?
Ég hef mikinn áhuga á því að sjá þessi námskrárdrög og kynna mér áherslur og markmiðssetningar menntamálaráðuneytisins í upplýsingatækni á grunn- og framhaldsskólastigi. Og ég á mjög erfitt með að sætta mig við áhugaleysi stefnumótandi aðila á því að gera þessi drög aðgengileg á sama eða í það minnsta svipuðum tíma og önnur námskrárdrög.


