Njósnahugbúnaður (e. spyware) nefnist hugbúnaður sem fylgist með allri notkun á tölvum sem hann smitar og sendir upplýsingar um þá notkun til utanaðkomandi aðila án samþykkis eiganda tölvunnar (sjá umfjöllun um vírusa, trójuhesta og njósnahugbúnað á Vísindavef HÍ). Slíkur hugbúnaður er helst notaður til að stela greiðslukortaupplýsingum og aðgangsupplýsingum (notandanöfnum og lykilorðum). Samkvæmt upplýsingum á vefnum netöryggi.is geta einkenni njósna-, ráns- og auglýsingahugbúnaðar verið eftirfarandi:
- Netauglýsingar birtast á skjánum hjá þér þótt þú sért ekki að vafra á netinu
- Ný upphafssíða kemur fram þegar þú ferð á netið og leitaraðgerðir hafa breyst
- Þér er vísað á aðra vefsíðu en þú ætlaðir
- Nýtt verkfæri, sem ekki er hægt að fjarlægja, er komið í vefsjánna
- Sprettigluggar (pop-up-Windows) birtast óvænt
- Nýtt teikn (Icon) er komið á skjáinn eða í uppáhalds-vefföng (Favorit bookmarks)
- Auglýsingaborðar vefsíðu eru sniðnir að þínum áhugamálum á Netinu
- Tölvan er hæggengari en venjulega, hún kemur með villumeldingar, frýs eða er lengi að ræsast
- Nettengingin er hægari og niðurhal er óeðlilega hátt
Á vef Microsoft er sérstaklega mælt með þremur hugbúnaðarlausnum í því skyni að þefa uppi, eyða og koma í veg fyrir að njósnahugbúnaður nái fótfestu á tölvukerfi notenda. Svo einstaklega skemmtilega til að allar eru lausninar fáanlega án endurgjalds:
Ég hvet alla Windows notendur til þess að athuga hvort einhver ofangreindra, eða sambærilegra forrita séu þegar til staðar í tölvu eða tölvum viðkomandi og ekki þá að sækja sér slíkan hugbúnað og setja upp hið fyrsta.
Í raun er ekkert sem mælir gegn því að nýta fleiri en einn hugbúnað á sömu tölvunni til þess að fást við þá óværu sem njósnahugbúnaður er. Sjálfur nota ég bæði Ad-Aware og Windows Defender og hefur það reynst mjög vel. Ég hef minni reynslu af Spybot Search and Destroy. Uppsetning og notkun þessa forrita er mjög einföld og uppfærslur á sjálfum hugbúnaðinum sem og upplýsingum um þann njósnahugbúnað sem hann vinnur á eru sjálfvirkar og framkvæmdur í gegnum Netið.
Að lokum vil ég minna lesendur á SAFT vefinn þar sem viðfangsefnið er örugg netnotkun barna


