Ein viðamesta breytingin í útgáfu 1.6 mun reyndar vekja litla eftirtekt hjá langflestum notendum, en hún felst í því að Moodle verður að fullu Unicode samhæft, þ.e. nýtir UTF-8 stafasettið. Aðrar áhugaverðar nýjungar eru m.a. innbyggt bloggkerfi, My Moodle upphafssíða sem notendur geta mótað að eigin þörfum, gagnagrunnseining, ný námssnið s.s. LAMS (byggir á LAMS kerfinu), miðlægar skýrslur og margt fleira.
Íslenskir Moodle notendur munu sjá þá breytingu helsta á kerfinu að íslenska er nú eitt fjölmargra tungumála sem hægt er að setja upp við uppsetningu á sjálfu kerfinu. Er þetta í fyrsta skipti sem Moodle styður opinberlega við íslensku og því spennandi tímamót sem vonandi eiga eftir að hvetja enn fleiri hér á landi til að reyna þessa lausn.
Moodle 1.6 er í prófunum hér á landi og mun verða nýtt í kennslu þegar í haust, en fyrrgreind uppfærslan á Moodle.org vefnum er skýr skilaboð um að beta fasanum fari brátt að ljúka. Skólum sem nota Moodle hérlendis fer sífellt fjölgandi enda um öfluga, einstaklega aðgengilega og framsækna lausn að ræða. Þá sakar ekki að Moodle er opin hugbúnaður sem hægt er sækja og nota án endurgjalds. Það býður enginn betur!


