Ubuntu - fyrstu kynni lofa góðu

Skrifað 29. June 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

ubuntu.jpgFyrir nokkru óskaði ég eftir að fá senda diska með Ubuntu (KDE útgáfunni reyndar) GNU/Linux-dreifingunni vinsælu og komu þeir í hús nýlega. Undanfarna daga hef ég verið að prófa mig áfram með kerfið og fyrstu kynni lofa aldeilis góðu.

Ubuntu hefur gjarnan þótt einstaklega aðgengileg og notendavæn GNU/Linux dreifing enda sýndi það sig að uppsetning á kerfinu var ótrúlega einföld. Jafnvel þráðlausa Netið hjá mér virkaði eins og ekkert væri sjálfsagðara, en satt best að segja átti ég ekki von á því. Ubuntu er án efa eitt magnaðasta skref GNU/Linux til þessa í átt almennrar notkunar og hvet ég alla til þess að kynna sér framtakið. Áhugasamir tölvunotendur þurfa ekki að setja kerfið upp í heild sinni til þess eins að upplifa Ubuntu heldur er hægt að keyra það beint af geisladisknum með því einu að ræsa PC vél með Ubuntu geisladiski í drifinu. Þetta er mjög skemmtileg leið til þess að kynna sér GNU/Linux án nokkurrar fyrirhafnar. Hér má sjá skjámynd úr Ubuntu.

Ubuntu

Ég hef um langan tíma verið sannfærður um möguleika opins hugbúnaðar og ágæti þeirrar hugmyndafræði sem opinn og frjáls hugbúnaður grundvallast á. Þessi sannfæring mín á ekki síst rætur sínar að rekja til reynslu minnar af notkun opins hugbúnaðar í starfi mínu. Fram til þessa hef ég helst fengist við námsstjórnunarkerfið Moodle, vefumstjónarkerfið Joomla og ýmsan notendahugbúnað, s.s. Firefox, en lítið átt við sjálft GNU/Linux stýrikerfið eða gluggaumhverfi eins og KDE eða Gnome. Það er því mjög spennandi þegar maður loksins lætur verða að því að kynnast öllu því sem er að gerast á þeim vettvangi. Hér eru að lokum nokkrar áhugaverðar slóðir fyrir þá sem vilja kynna sér Ubuntu betur:


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni