Heillandi, einfaldlega heillandi

Skrifað 02. July 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

flickr_logo.jpgFlickr hópar (groups) eru stórskemmtileg leið fyrir fámenna jafnt sem fjölmenna hópa áhugasamra ljósmyndara að safna saman og deila myndum af nánast hverju sem er. Ég hef enga hugmynd um hversu margir slíkir hópar fyrirfinnast á Flickr en margir eru þeir.

Hópar geta verið annað hvort almennir (public) og lokaðir (private). Ég eyddi smá tíma nýlega í að kynna mér aðeins betur ótrúlega fjölbreytta flóru almennra hópa á Flickr og hér má sjá brot af því sem á vegi mínum varð:

wow.jpg Flickr Wow
Myndirnar í þessum hóp eiga það allar sameiginlegt að einhver hefur notað orðið “wow” þegar viðkomandi hefur skráð athugasemd við myndina. Þarna eru líka ófáar myndir sem lítið annað er hægt að segja við en “vá”.
  eldingar.jpg Lightning
Það er eitthvað við eldingar sem mér hefur alltaf þótt heillandi. Kannski vegna þess að við upplifum þetta nátturu
  underwater.jpg Underwater Photos
Allar eigar þessar myndir það sammerkt að vera teknar neðansjávar. Þvílíkir litir!
  tvaer.jpg Diptychs
Mottó þessa hóps er einfalt. Tvær eru betri ein ein. Sjón er líka sögu ríkari.
  photoshop.jpg Photoshop Contest
Hér er skemmtileg leið til þess að nýta hópa í Flickr til að halda utan um ljósmyndasamkeppni.
  moon.jpg Lunatics
Það eru nokkrir hópar á Flickr sem hafa tunglið að viðfangsefni. Sumar myndirnar eru einfaldlega stórkostlegar. Hér er svo annar hópur fyrir þá sem hafa sérstakan áhuga á tunglinu og svo enn annar.
  ruraldecay.jpg Rural Decay
Það er eitthvað svo angurvært en heillandi í senn við þessar myndir af yfirgefnum og illa förnum húsum og hverskyns hlutum í niðurníðslu. Hér er annar svipaður hópur.

Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni