NECC 2006 ráðstefnan er hafin

Skrifað 05. July 2006
Flokkur: ráðstefnur
Engar athugasemdir frá lesendum

necc-2006.jpgNECC (National Educational Computing Conference) hófst í dag, en NECC er heimsins stærsta ráðstefna sem hefur að viðfangsefni upplýsingatækni í skólastarfi. Ráðstefnan er haldin í San Diego dagana 5. - 7. júlí og er ráðgert að allt að 16.000 manns leggi þangað leið sína að kynnast öllu því nýjasta, forvitnilegasta og skemmtilegasta sem upplýsingatæknin hefur að bjóða í námi, kennslu og nánast allt þar á milli.

NECC var fyrst haldin árið 1979 þannig að þetta er í 27. skiptið sem ráðstefnan er haldin. Það er ISTE samtökin (The International Society for Technology in Education) sem standa að ráðstefnunni. Frekari upplýsingar um ISTE má finna á vef samtakanna. Dagskrá NECC 2006 og upplýsingar um ráðstefnuna sem og fyrri ráðstefnur má finna á vef ráðstefnunnar.

NECC vekur ætíð athygli og fær jafnan mikla umfjöllun á Netinu. Ein besta leiðin til þess að komast í takt við umræðuna er að fylgjast með á bloggvefjum áhugasamra þátttakenda en til þess má leita á náðir Technorati. Leitarorðin NECC og NECC06 henta vel til þess að hafa uppi á bloggurum sem fjalla um ráðstefnuna. Önnur leið er að lesa eitthvað af þeim fjölmörgu bloggum og upptökum (vantar gott orð yfir podcasting!) sem vísað er á af sjálfum NECC vefnum.

Ég hef því miður ekki upplifað NECC af eigin raun en það væri gaman að vita hvort einhver Íslendingur hafi lagt leið sína á NECC.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni