Stafrænir nemendur við hliðræna skóla
“Digital students @ Analog Schools” nefnist áhrifamikil stuttmynd Consuelo Molina þar sem hún fjallar um skólastarf og kennslu og hvernig skólastofnunum hefur mistekist að móta sig í takt við nútíma samfélag. Smelltu hér til að opna myndina á Quicktime sniði.
Ef eitthvað er að marka þá nemendur sem tjá sig í stuttmynd Molina þá er augljóst að skólastarf tekur almennt ekki mið af þörfum nemenda og upplifun þeirra af því starfi sem fram fer innan skólans og kennslustofunnar er neikvæð og úr takt við raunveruleikan. Kennsla og kennsluhættir sérstaklega eru gamaldags að mati nemenda og höfða ekki til þeirra. Stöðugir fyrirlestrar eru gamaldags kennsluaðferð sem hindrar skapandi skólastarf og gerir ekkert til þess að vekja áhuga nemenda eða virkja þá í náminu. Eða eins og einn nemandinn orðar það, kennarar í dag eru að kenna með verkfærum gærdagsins.
Stuttmynd Molina byggir á viðtölum við nemendur þar sem þeir lýsa skoðunum sínum á nútíma skólastarfi. Og það er magnað að heyra hvað þessir nemendur hafa að segja og hollt öllum kennurum að hlusta og sjá. Persónulega er ég sannfærður um að flest það sem þarna kemur fram á jafnt við hér á landi sem í Bandaríkjunum. Það er hins vegar stór spurning hvort við kennarar séum tilbúnir til þess að bregðast við þessari gagnrýni á uppbyggilegan hátt?
Í stuttmyndinn kemur vel fram hvernig nútíma skólastarf er eins og á skjön við nútíma nemendur. Ég greini t.d. eftirfarandi:
það hefur myndast gjá á milli nemenda og kennara
- 99% of teachers do it the old fashion way
- It’s really hard to pay attention and be intrigued to learn if all the teacher
- does is just give us lectures
- If students can not indentify and connect what they are learning with something
- that is relevant to them they are not going to remember it as well
- it’s like they’re teaching today using yesterdays tools and I don’t think people even think like that any more
- We have all this access to technology, something that can help us learn better, something that can help us personalize learning. Professors don’t really seem to get that
- The new jobs that exist now are demanding communicating skills. Interact with people. Be expressive. Come up with ideas. These skills are so crucial in order to attain these jobs and it’s not being offered in the classroom.
Það hefur myndast gjá á milli skóla og samfélags
- Anywhere you go outside of the classroom that technology is being used and I don’t understand why we are not applying it to class
- If your sole purpose is just to prepare them for the future then you have to go outside and see what their future is going to be
Það hefur myndast gjá á milli skóla og atvinnulífsins
- The jobs that are out there now are very different from the ones my parents had
- The jobs that colleges are preparing us for are jobs that are being outsorced
- we are not preparing the students with skills that are neccesary for these new kinds of jobs that we have
- If this place isn’t perfecting my skills for the new business world. Then why am I here?
Nú munu örugglega einhverjir hugsa sem svo “Þetta er ekkert nýtt og allt sem þarna er sagt hefur verið sagt oft áður!” Og vissulega er það hárrétt. Heilu kennsluaðferðirnar hafa verið mótaðar einmitt til þess að koma til móts við þessi viðhorf nemenda. Heilu skólarnir hafa það að markmiðið að skipuleggja og framsetja nám sitt og kennslu á þann hátt að tengja það betur reynsluheimi nemenda og og áherslum og markmiðum atvinnulífins. Ég veit. En staldrið aðeins við og hlustið á hvað þessir nemendur hafa að segja. Hvað með möguleika nemenda á að tjá sig og setja fram skoðanir sína og verk á frumlegan og fjölbreyttan hátt! Erum við virkilega að koma til móts við nemendur hvað það varðar? Hvað með þá vinnu sem fram fer innan nútíma skólastofnanna, er hún í raun og veru að undirbúa nemendur undir þátttöku á nútíma vinnumarkaði? Hvað með upplýsingatæknina? Er hún að nýtast nemenum og kennurum sem skyldi? Þetta er bara brot af þeim spurningum sem þessi magnaða mynd vekur upp.
Consuelo Molina er hvað þekktust fyrir Sweatshops stuttmyndina (ath. á quicktime sniði) sína sem hún vann sem nemandi. Ég hvet alla til þess að kynna sér einnig þá stuttmynd sem vakið hefur gríðarlega athygli. Hér er vefsíða sem hefur að geyma nokkrar stuttmyndir Molina.
Þess má og geta að Molina tók þátt í hinu magnaða SFETT verkefni (San Fernando Education Technology Team) sem er hugarfóstur Marco Torres við San Fernando High School í Bandaríkjunum. Nemendur í San Fernando skólanum eru flestir af suður amerískum uppruna og 96% þeirra hafa ekki aðgengi að tölvu á heimilum sínum og einkunni 83% þeirra eru undir meðallagi.
Fram til þessa hafa u.þ.b. 300 nemendur tekið þátt í SFETT verkefninu og þeir 80 nemendur sem hafa útskrifast þaðan hafa haldið í framhaldsnám. Sjálfur segir frumkvöðullinn Torres að kennslan veki áhuga nemenda vegna þess að þar sé áhersla lögð á hagnýtingu upplýsingatækninnar við lausn raunverulegra verkefna. Hvernig væri ef við kæmum til móts við þá nemendur okkar sem eiga erfitt með að fóta sig í skólakerfinu hér á þennan hátt? Frekari upplýsingar um SFETT má finna hér.


