Educause gaf nýlega út bókina “Cultivating Careers: Professional Development for Campus IT” sem er samansafn greina um leiðtoga/stjórnendur á sviði upplýsingatækni í skólastarfi, starfsvettvang þeirra, hlutverk og tækifæri.
Greinarnar í safninu miðast fyrst og fremst við störf þeirra einstaklinga sem hafa með höndum umsýslu upplýsingatæknimála í æðri menntastofnunum. Hlutverk greinanna er að ráðleggja og leiðbeina núverandi leiðtogum/stjórnendum í starfi en þær eiga einnig fullt til allra þeirra sem hafa hug á að leggja fyrir sig þennan starfsvettvang eða vilja fræðast um hann.
Ég hef nýlokið við lestur einnar greinar bókarinnar, þ.e. “12 Habits of Successful IT Professionals” þar sem núverandi forstöðumaður Educause samtakanna, Brian L. Hawkins, fjallar um 12 ávana (ekki viss um að það orð eigi nógu vel við innihald greinarinnar) árangursríksra leiðtoga í upplýsingatækni. Ég tók saman stutt yfirlit yfir helstu atriði greinarinnar þar sem mér þótti hún mjög áhugaverð og birti hér að neðan. Eins og gefur að skilja jafnast það engan vegin á við lestur greinarinnar í heild sinni sem ég mæli heilshugar með.
12 ávanar árangursríkra leiðtoga í upplýsingatækni
1. Þeir eru fjöltyngir
Hér er ekki átt við tungumálakunnáttu heldur getuna til þess að eiga árangursrík samskipti við starfsfólk með ólíka fagþekkingu og bakgrunn, s.s. nemendur, stjórnendur og aðra sem koma að málum. Grundvöllur gefandi samskipta er m.a. skilningur á starfsvettvangi, áherslum og aðstöð þessa ólíku hópa sem allir nýta upplýsingatæknina á einn eða annan hátt.
2. Þeir koma í veg fyrir “hið ómeðvitaða samsæri”
Hið ómeðvitaða samsæri felst, samkvæmt hugmyndum fræðimannsins Warren Bennis, í þeirri staðreynd að fjölmargir hæfir stjórnendur láta smáatriði hversdagsvinnunnar draga úr sér alla orku þannig að á endanum er enginn tíma til staðar fyrir stór og mikilvæg verkefni. Dæmi um slíkt verkefni gæti t.a.m. verið vinna við framtíðarskipan stofnunar. Bennis leggur til að stjórnendur taki sérstakan tíma frá fyrir slíkar hugsanir og verkefni því sá tími verður ekki til að sjálfu sér.
3. Þeir lesa fjölbreytt efni
Umræddur Bennis leggur einnig til að stjórnendur breyti lestrarvenjum sínum. Hann er nefnilega þeirrar skoðunar að lesefni fólks hafi áhrif á viðhorf þeirra og skoðanir. Það er því afar mikilvægt leiðtogum og stjórnendum að fylgjast vel með á fræðasviðinu og einnig viðburðum og þróun sem tengist skólastarfi almennt.
4. Þeir uppfræða annað starfsfólk
Eitt af hlutverkum sérfræðinga á sviði upplýsingatækni inna skólakerfisins er að gera öðrum og þá ekki síst stjórnendum ljós áhrif upplýsinga- og samskiptatæknina á nútíma skólastarf. Nútíma stjórnendur skólastofnanna verða einfaldlega að gera sér grein fyrir því að ábyrgð þeirra nær yfir víðtækari vettvang en einungis fjármál og starfsmannastjórnun.
5. Þeir eru meðvitaðir um takmörk sín
Sérfræðingar á sviði upplýsingatækni verða að hafa skilning á því að skólastofnanir snúast um meira en tæknina eina. Stundum eru aðrir þættir skólastarfsins mikilvægari eða meira áríðandi í augnablikinu.
6. Þeir tala varfærnislega á opinberum vettvangi
Upplýsingatæknin snertir á einn eða annan hátt starf flestra sem koma að skólastarfi í æðri menntastofnunum og upplýsingakerfi stofnana hafa oft að geyma upplýsingar sem ber að fara með sem trúnaðarmál. Stundum er kallað eftir skoðunum, áliti eða viðbrögðum stjórnenda á sviði upplýsingatækni og þá er mikilvægt að kunna að vanda mál sitt.
7. Þeir rækta samstarfsaðila og nefndarstörf
Leiðtogar og stjórnendur á vettvangi upplýsingatækni þurfa gjarnan að eiga samskipti við marga ólíka aðila í tengslum við starf sitt. Mikivægt er að rækta vel slíkt samstarf, t.a.m. með markvissri upplýsingagjöf.
8. Þeir styðja við starf annarra
Upplýsingatæknin er hvorki upphafið né endirinn því starfi sem fram fer innan skólanna. Hlutverk stjórnenda á sviði upplýsingatækni er ekki síst að gera öðrum starfsmönnum kleift að ná árangri í sinni vinnu. Því takmarki verður einungis náð þegar stjórnendur jafnt sem starfsfólk í upplýsingatækniþjónustu gerir sér grein fyrir að stór hluti vinnu þeirra er þjónustumiðaður.
9. Þeir væla ekki
Það er eðlilegt að upplifa skemmri eða lengri tímabil þar sem ekkert virðist ganga. Æðstu stjórnendur taka ákvarðanir sem virðast óskynsamlegar og ekki í takt við væntingar, viðvarandi fjárskortur, tæknileg vandamál og þar fram eftir götunum. Allt eru þetta vandamál sem leiðtogar verða að geta tekist á við án þess að væla yfir hlutskipti sínu eða lífsins ósanngirni.
10. Þeir hugsa almennt
Leiðtogar í upplýsingatækni hefja oft störf sem sérfræðingar á þröngu fræðasviði en gera sér svo grein fyrir því að starf þeirra krefst miklu almennari nálgunnar. Það er ekki vænlegt til árangurs að hugsa einungis út frá þröngum hagsmunum tækninnar einnar.
11. Þeir endurskilgreina sjálfan sig
Í upphafi starfsferils síns skilgreina sérfræðingar á sviði upplýsingatækni sig oft sem forritarar, kerfisfræðingar, vefhönnuðir, allt eftir því hver formleg menntun þeirra og reynsla segir til um. Slík sérhæfing hentar illa hlutverki leiðtoga í upplýsingatækni og þróast yfirleitt yfir í eitthvað mun almennara.
12. Þeir viðhalda jafnvægi
Hlutverk leiðtoga í upplýsingatækni er krefjandi starf þar sem aldrei virðist vera nægur tími til að framkvæma allt sem framkvæma þarf. Með góðri skipulagningu og tímastjórnun er þó vel hægt að samræma vinnuna og gefandi fjölskyldu- og einkalíf.
“Cultivating Careers: Professional Development for Campus IT” má sækja án endurgjalds á pdf sniði á vef Educause.
Educause er samstarfvettvangur yfir 2000 menntastofnana og hefur það að markmiði að styðja við framþróun í skólastarfi með hagnýtingu upplýsingatækninnar.


