Veldu Firefox

Skrifað 17. July 2006
Flokkur: Firefox
Engar athugasemdir frá lesendum

firefoxlogo.jpgÍ tilefni að útgáfu 2.0 af Firefox vafranum sem væntanleg er síðar á árinu hafa áhugamenn hrint úr vör sérstöku átaki á Netinu sem miðar að því að auka notkun á þessum frábæra Netvafra. Átakið, sem hófst þann 15. júli sl., felst í því að Firefox notendur skrá sig á vefsíðunni www.worldfirefoxday.com og kynna Firefox fyrir einum vin sínum með sérstökum tölvupósti. Ef svo vel vill til að viðkomandi sækir Firefox eftir að hafa fengið sendan þennan póst fá báðir aðilar nöfn sín skráð á svokallaðan vinavegg Firefox (Firefox Friends Wall) ásamt því sem þeirra verður getið í kóða Firefox 2.0.

Átakið stendur til 15. september þessa árs, en það er engin ástæða til þess að bíða fram á síðustu stundu. Ég hvet því alla Firefox notendur að sækja vefinn www.worldfirefoxday.com heim og taka þátt í þessu skemmtilega átaki.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni