Kennarar tjá sig um tæknina

Skrifað 25. July 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Niðurstöður hinnar árlegu Teachers Talk Tech könnunar þar sem rannsökuð er notkun og viðhorf bandarískra grunnskólakennara til upplýsingatækninnar, eru nú aðgengilegar á Netinu. Könnunin er framkvæmd í fjórða skiptið í ár og er fróðlegt að bera saman niðurstöður á milli ára. Þátttakendur eru yfir 1000 kennarar víðsvegar um Bandaríkin.

Teachers Talk Tech er ætlað að meta áhrif upplýsingatækninnar á skólastarf og starf kennara, en kennarar eru augljóslega í einna bestri aðstöðu til að meta raunveruleg áhrif upplýsingatækninnar í námi og kennslu. Í könnuninni var sérstök áhersla lögð á að:

  • kanna hvernig grunnskólakennarar (K12) nýta tölvur í starfi sínu
  • meta hlutverk og virkni upplýsingatækninnar í námi og kennslu
  • gefa kennurum kost á að koma eigin skoðunum og viðhorfum varðandi upplýsingatæknina á framfæri
  • meta árangur upplýsingatækninnar í því að undirbúa nemendur undir atvinnulíf á 21. öldinni.

Hér á eftir fylgja nokkrar áhugaverðar athugasemdir kennara:

  • The teaching process is fundamentally changing as teachers move from learning how computers work to using technology to change how they teach, culminating in transforming how students learn.
  • Teachers believe technology is increasingly influencing the teaching of thinking and learning skills to develop lifelong learners.
  • Teachers view technology as an effective tool for teaching, as well as for administration, communication and research functions.

Þar sem ég er ennþá að fara yfir niðurstöður könnunarinnar get ég ekki metið hana í heild sinni, en við fyrstu sýn virðast viðbrögð kennara vera mjög jákvæð og greinilegt að upplýsingatæknin er orðin eitt mikilvægasta verkfærið í starfi kennara. Eftirfarandi vakti m.a. áhuga minn.

Áhrif upplýsingatækninnar á kennslu

Spurt var: Since you began teaching, has computer technology changed the way you teach?

  • 54% kennara segja upplýsingatæknina hafa mikil (profound impact) áhrif á kennslu sína og 34% kennara segja áhrifin nokkur (just some).
  • Einungis 8% kennara segja áhrif tækninnar mjög lítil og 4% segja áhrifin engin

Mikilvægi upplýsingatækninnar í starfi kennara

Spurt var: Rate the importance of computer technology for you personally in each of the following-teacher related functions

  • Störfum eins og mætingu og einkunnagjöf
    88% sögðu nokkuð eða mjög mikilvæg í ár miðað við 76% árið 2004.
  • samskipti við aðra kennara, stjórnendur, nemendur og foreldra
    86% sögðu nokkuð eða mjög mikilvæg í ár miðað við 71% árið 2004
  • Efnisöflun í undirbúningi kennslu
    81% sögðu nokkuð eða mjög mikilvæg í ár miðað við 73% árið 2004
  • Kennslutæki fyrir nemendur
    79% sögðu nokkuð eða mjög mikilvæg í ár miðað við65% árið 2004

Tölvufærni kennara

Spurt var: How would you describe your skill set with computers and other classroom technology?

Kennarar eru stöðugt að bæta við tölvuþekkingu sína og nærri 2/3 hlutar kennara sem tóku þátt í könnuninni telja getu sína nokkuð góða (somewhat advanced) eða góða (advanced)

Upplýsingatæknin í skólastofunni

Spurt var: On average, how frequently do you integrate technology into your instruction?

Tveir þriðju hluta kennara samþætta tæknina kennslunni í það minnsta tvisvar sinnum í viku. 37% kennara gera slíkt hið sama daglega.

Helstu hindranir á vegi upplýsingatækninnar

Spurt var: What do you see as the most significant obstacles to integrating technology into your daily curriculum?

55% kennarar telja aðgengi að tölvum helstu hindrun fyrir því að samþætta upplýsingatækni og kennslu en tímaskortur kemur þar á eftir en 48% kennara telja það helstu orsökina. 48% kennara telja líka skort á fjármagni hindra notkun upplýsingatækninnar en 30% segja bekkjarstærð hindrandi þátt. Það er athyglivert að 26% kennara telja undirbúning undir stöðluð próf standa í vegi fyrir samþættingu upplýsingatækninnar kennslunni en einungis 17% telja skort á tæknistuðningi hindrun.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni