Blackboard með einkaleyfi á netbundnu námsstjórnunarkerfi

Skrifað 27. July 2006
Flokkur: Almennt
Ein athugasemd frá lesendum

Blackboard fyrirtækið, framleiðandi samnefnds námsstjórnunarkerfis, hefur fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum á netbundnu námsstjórnunarkerfi eða “Internet-based education support system and methods ” eins og segir í einkaleyfinu. Blackboard hefur einnig sótt um sambærilegt einkaleyfi í löndum Evrópusambandsins, Kína, Japan, Kanada, Ástralíu, Singapore, Nýja Sjálandi, Indlandi, Mexíkó, Suður Kóreu, Hong Kong og Brasilíu.

Blackboard fyrirtækið þykist með öðrum orðum hafa fundið upp netbundna námsstjórnunarkerfið nánast í heild sinni og eins síns liðs, sem kemur óneitanlega dálítið á óvart. Það kemur hins vegar ekki á óvart að fyrirtækið grípi til þess ráðs að vernda viðskiptalega hagsmuni sína með því að sækja um einkaleyfi, hversu mikið á skjön við raunveruleikan innihald þess kann að vera. Það opinberar líka betur en margt annað að hugkvæmni, frumkvöðlastarf og skapandi framþróun eigin vöru er ekki eitthvað sem stjórnendur Blackboard þora að treysta á í samkeppninni við önnur kerfi. Það skal tekið fram að Blackboard/WebCT er með stærstu markaðshlutdeild námsstjórnunarkerfa innan menntastofnana en virði þess markaðar er metið á allt að 500 milljónir dollara samkvæmt nýlegri skýrslu og fer vaxandi.

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig Blackboard mun nýta sér einkaleyfið nýfengna, en engar vísbendingar hafa borist frá fyrirtækinu um slíkt. Einkaleyfið virðist ótrúlega almennt orðað við fyrstu sýn þannig keppinautar Blackboard munu örugglega hafa af þessum nýjustu einokunartilburðum fyrirtækisins sem nýlega gleypti með húð og hári WebCT, helsta keppinaut sinn. Það verður því miður að teljast líklegt að einkaleyfið verði notað sem vopn gegn öllum þeim sem eru svo ósvífnir að ógna markaðshlutdeild Blackboard.

Persónulega held ég að ef í hart fer þá muni það fyrst og fremst bitna á hinu akademíska umhverfi og þeirri hröðu og lifandi framsækni sem einkennt hefur hugbúnaðarþróun á vettvangi náms og kennslu síðustu ár. Hér á ég ekki síst við opinn hugbúnað sem á undanförnum árum hefur sannað sig sem áreiðanlegur valkostur gagnvart séreignakerfunum á markaðinum í dag, hvaða nafni sem þau nefnast. Ég efast ekki um að stjórnendur Blackboard telja sér ógnað af óhemjandi sköpunarkraftinum sem býr í opnum hugbúnaði og þá um leið augljósum vinsældum Moodle, Sakai, Bodington, Atutor og öðrum viðlíka kerfum. Það er þó varla ástæða einkaleyfissins, sem sótt var um þann 30. júní árið 2000. Á hinn bóginn gætu þessar fréttir verið vatn á myllu frumkvöðla sem um þessar mundir standa að smíðum á mjög spennandi persónubundnum og félagslegum og opnum (einnig open source) námsumhverfum eins og Elgg og persónulegum námsumhverfum (sjá t.d. hér).

Fyrstu viðbrögð netverja við fréttunum af einkaleyfi Blackboard eru eins og búast mátti við afar neikvæð, sjá t.d. hér. Einhverjir telja þó einkaleyfið of almenns eðlis til þess að hægt sé að byggja trausta lösókn grundvallað á því. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að svo almennt einkaleyfi eins og hér virðist á ferðinni þjóni einungis þeim tilgangi að hindra eðlilega þróun og notkun námssumhverfa í skólastarfi. Einokunarstaða á markaði leiðir sjaldnast til framþróunar eins og sannast hefur eftirminnilega í tilfelli IE7 vefskoðarans frá Microsoft svo dæmi sé tekið.

Þeir sem vilja kynna sér þetta mál nánar geta fundið texta einkaleyfisins í heild sinni hér og upplýsingar um einkaleyfið á vef Blackboard eru hér. Ég mæli einnig með því að heimsóttur sé vefurinn www.nosoftwarepatents.com.


Tengt efni

1 athugasemd við “Blackboard með einkaleyfi á netbundnu námsstjórnunarkerfi”

  1. Lára Stefánsdóttir skrifar:

    Þetta er með ólíkindum og heftir frelsi manna til að þróa búnað af þessu tagi. Svona einokun er með ólíkindum og eins og einkaleyfastofa þeirra Bandaríkjamanna viti ekki alveg um hvað málið snýst.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni