Skyggnst inn í framtíð Netbundins náms á háskólastigi
Ráðgjafaþjónustan Kineo og stórfyrirtækið Intel sameinuðust nýlega í framkvæmd á rannsókn þar sem tilraun varð gerð til þess skyggnast inn í framtíð netbundins náms á háskólastigi. Niðurstöðurnar komu reyndar fæstar á óvart en þetta var ágætist lesning engu að síður. Hér á eftir fara nokkrir punktar með helstu niðurstöðum:
Háskólar og tækni
- Aukin samkeppni um nemendur
- Menntun er lykilinn að sterkum efnahag þjóða
- Leiðandi háskólar marka stefnuna hvað upplýsingatæknina varðar og eru þeir flestir bandarískir. Aðgangur að þráðlausu neti er sjálfsagður og fartölvueign nemenda almenn
- Nemendur krefjast aukins gæði náms með tilstuðlan upplýsingatækninnar
- Noregur og Skandinavía eru leiðandi í notkun námsstjórnunarkerfa (VLE)
Þarna kemur lítið á óvart, nema kannski leiðandi staða norrænu þjóðanna í notkun á námsstjórnunarkerfum.
Námsstjórnunarkerfi og framleiðendur þeirra
- Samruni fyrirtækja er að eiga sér stað á markaði séreignahugbúnaðar (s.s. Blackboard og WebCT) en fjölmargar opnar lausnir (s.s. Moodle, Sakai og Atutor) njóta töluverðra vinsælda
- Blackboard, Moodle og Sakai eru markaðsráðandi aðilar og keppa á alþjóðagrundvelli (Moodle og Sakai eru opnar lausnir, þ.e open soure)
- Þar að auki eru til staðar kerfi með minni dreifingu og staðbundnari, s.s. dotLrn, Claroline, Fronter, It’s Learning og Dokeos.
Ég veit að Kennaraháskólinn skoðaði It’s Learning kerfið (held að það sé norskt) og þótti bara nokkuð gott. Í ljósi nýlegra frétta af einkaleyfi Blackboard og lögsókn fyrirtækisins á hendur Desire2Learn er greinilegt að baráttan á markaði námsstjórnunarkerfa er í algleymingi.
Ástæður fyrir netbundu námi
- Aukin gæði náms s.s. vegna aukinna möguleika á samskiptum nemenda og kennara með aðstoð bloggvefja, umræðuvefja og skilaboðakerfa
- Aukið aðgengi að námsgögnum á Netinu
- Einstaklingsbundnara nám og námsmat
- Upplýsingatæknin minnkar álag á stjórnunarlegum verkþáttum eins og innritun, afhendingu verkefna og verkefnaskilum.
- Gagnvirk próf og netbundin einkunnagjöf
- Meiri tími fer í kennslu en minni í utanumhald og almenna umsýslu
- Minni kostnaður, t.a.m. við innritun og umsýslu umsókna. Einnig möguleiki á því að auka nemendafjölda og sækja á alþjóðamarkað


